18. september, 2026
Fréttir

Ungmennaþing Vesturlands verður haldið á Hótel Borgarnesi helgina 25.–27. september 2026. Þingið er samstarfsverkefni sveitarfélaga á Vesturlandi, Ungmennaráðs Vesturlands og Samtaka sveitarfélaga á Vesturlandi (SSV) og er fjármagnað af Sóknaráætlun Vesturlands.

Markmið þingsins er að skapa vettvang þar sem ungt fólk af öllu Vesturlandi getur komið saman, kynnst öðrum ungmennum og tekið þátt í samtali um málefni sem snerta ungt fólk og framtíð svæðisins.

Á þinginu verður meðal annars rætt um stöðu ungmenna á Vesturlandi frá ýmsum hliðum og boðið verður upp á kynningar sem tengjast málefnum ungs fólks og ungmennaráða.

Þingið er ætlað ungu fólki á aldrinum 14–25 ára.

Fjöldi þátttakenda er takmarkaður við 40 ungmenni og verður lágmarksfjöldi þátttakenda tryggður frá hverju sveitarfélagi. Þátttakendum yngri en 18 ára þarf að fylgja ábyrgðaraðili.

Þátttaka er gjaldfrjáls og innifalið í þátttöku er gisting, matur, vinnugögn og annað tilheyrandi. Ferðakostnaður er á ábyrgð sveitarfélaganna sjálfra.

Þau sem hafa áhuga á að taka þátt þurfa að sækja um í síðasta lagi 21. september 2026.

Smelltu hér til að sækja um.

Nánari upplýsingar

Akranes: Ívar Orri – ivar@torpid.is
Borgarbyggð: Sonja Lind – sonjalind@borgarbyggd.is
Dalabyggð: Einar Björn – einarbjorn@dalir.is
Eyja- og Miklaholtshreppur: Sigurbjörg Ottesen – oddvita@eyjaogmikla.is
Grundarfjörður: Hinrik – ithrott@grundarfjordur.is
Hvalfjarðarsveit: Helgi Óttar – helgih@hvalfjardarsveit.is
Snæfellsbær: Margrét Sif – margretsif@snb.is
Sveitarfélagið Stykkishólmur: Maggi – magnus@stykkisholmur.is

Framkvæmd þingsins er í höndum Borgarbyggðar, SSV og Ungmennaráðs Vesturlands.

Tengdar fréttir

18. september, 2026
Fréttir

Stjórnendur Borgarbyggðar efla færni í viðverustjórnun og leiðtogahlutverki

Sem liður í áframhaldandi þróun leiðtogafærni og markvissari viðverustjórnun hjá Borgarbyggð taka allir stjórnendur sveitarfélagsins þátt í vinnustofu undir leiðsögn Helenu Jónsdóttur, klínískum sálfræðingi og sérfræðingi hjá Mental ráðgjöf. Áhersla vinnustofunnar er meðal annars á samræmdan stjórnendatakt, innleiða regluleg innlit, viðverustjórnun og eftirfylgni. Helena fjallar um hvernig styðja megi starfsfólk við farsæla endurkomu til starfa eftir langvarandi fjarveru og hvernig …