Umhverfis- og landbúnaðarnefnd Borgarbyggðar veitir árlega viðurkenningar fyrir snyrtilegar og vel hirtar lóðir og jarðir. Markmiðið er að hvetja íbúa og fyrirtæki til að leggja sitt af mörkum til að fegra umhverfið og efla samkennd í samfélaginu.
Nú er opið fyrir tilnefningar í eftirfarandi fimm flokka:
Snyrtilegt bændabýli
Falleg lóð við íbúðarhús
Snyrtileg atvinnulóð
Samfélagsviðurkenning – fyrir framúrskarandi framlag til umhverfismála
Sérstök viðurkenning – fyrir snyrtilegt og vel hirt umhverfi
Við hvetjum alla íbúa til að taka þátt og senda inn tilnefningar – hvort sem það er fyrir eigin lóð eða aðra sem þér finnst eiga skilið hrós.
Skilafrestur tilnefninga er 4. ágúst 2026.
Tilnefningar má skila inn á hér eða í þjónustuver Borgarbyggðar.
Við tilnefningu þarf að velja hvern flokk fyrir sig og smella svo á “bæta við nýrri hugmynd“

Við tilnefningu er hægt að smella á “Taka þátt án innskráningar“
Sjá einnig:
Umhverfisviðurkenningar Borgarbyggðar 2025
Tengdar fréttir

Sumarlokun Ráðhúss Borgarbyggðar 2025
Vegna sumarleyfa verður Ráðhús Borgarbyggðar lokað frá og með 20.júlí til 4.ágúst. Ef erindið getur ekki beðið má á þessum tíma senda tölvupóst á netfangið borgarbyggd@borgarbyggd.is Einhver röskun getur orðið á útgáfu reikninga vegna gjalda á vegum sveitarfélagsins á þessum tíma þ.e. reikningar gætu borist aðeins seinna en vant er. Eindagi gjalda/reikninga mun samt sem áður alltaf vera 30 dagar. Síðasti …