28. ágúst, 2026
Fréttir

Við þjóðaratkvæðagreiðslu 29. ágúst 2026 er skipan í kjördeildir í Borgarbyggð sem hér segir: 

Borgarneskjördeild í Hjálmakletti í Borgarnesi 

Þar kjósa íbúar á svæðinu milli Hítarár og Gljúfurár, á Hvanneyri og Andakíl. 

Kjörfundur hefst kl. 9:00 og lýkur kl. 22:00. 

 

Lindartungukjördeild í félagsheimilinu Lindartungu 

Þar kjósa íbúar á svæðinu milli Hítarár og Haffjarðarár. 

Kjörfundur hefst kl. 10:00 og lýkur kl. 18:00. 

 

Þinghamarskjördeild í félagsheimilinu Þinghamri, Varmalandi 

Þar kjósa íbúar í Stafholtstungum, Norðurárdal, Bifröst, Þverárhlíð. 

Kjörfundur hefst kl. 10:00 og lýkur kl. 20:00. 

 

Kleppjárnsreykjakjördeild í grunnskólanum á Kleppjárnsreykjum 

Þar kjósa íbúar Bæjarsveitar, Lundarreykjadals, Flókadals, Reykholtsdals, Hvítársíðu og Hálsasveitar. Í ár verður kjörfundur í Kleppjárnsreykjakjördeild í nýja hluta grunnskólans. Best er þá að leggja í bílastæðin við Borgarfjarðarbraut en keyra ekki inn í portið. Hurðin sem gengið er um verður merkt. 

Kjörfundur hefst kl. 10:00 og lýkur kl. 20:00 

 

Skorradalskjördeild í Laugarbúð Skorradal 

Þar kjósa íbúar Skorradals. 

Kjörfundur hefst kl. 10:00 og lýkur kl. 18:00. 


Kjörskrá 

Kjörskrá vegna þjóðaratkvæðagreiðslu liggur frammi í afgreiðslu ráðhúss Borgarbyggðar Digranesgötu 2, alla virka daga á opnunartíma. 

Talning
Talning atkvæða í þjóðaratkvæðagreiðslunni fer fram í Menntaskóla Borgarfjarðar Borgarbraut 54. 

Opið er fyrir uppflettingar í kjörskrá, sjá hér.  

 

Kjósendur eru hvattir til að athuga í hvaða kjördeild þeir eiga að kjósa og hafa persónuskilríki með sér á kjörstað. Á kosningavef Stjórnarráðs Íslands kosning.is geta kjósendur kannað hvar þeir eiga að kjósa og þar er einnig að finna ýmsar upplýsingar varðandi kosningarnar. Á kjördag verður yfirkjörstjórn Borgarbyggðar með aðsetur í Hjálmakletti í Borgarnesi.

Á síðu Landskjörstjórnar eru svo upplýsingar um hvernig á að kjósa (skref fyrir skref). Hér er upplýsingasíða Landskjörstjórnar.


Yfirkjörstjórn Borgarbyggðar
 

Tengdar fréttir

27. ágúst, 2026
Fréttir

Hlaðan vígð

Í gær fór fram hátíðleg vígsluathöfn á nýju fjölnota íþróttahúsi Borgarbyggðar. Vel var mætt og mátti greinilega sjá að gleðin var allsráðandi þegar húsið var formlega tekið í notkun. Með tilkomu hússins skapast nýir og fjölbreyttir möguleikar til íþrótta-, æskulýðs- og frístundastarfs í sveitarfélaginu. Það var því sérstakt fagnaðarefni að geta tekið húsið formlega í notkun og deilt þessum merka …