Í gær fór fram hátíðleg vígsluathöfn á nýju fjölnota íþróttahúsi Borgarbyggðar. Vel var mætt og mátti greinilega sjá að gleðin var allsráðandi þegar húsið var formlega tekið í notkun.
Með tilkomu hússins skapast nýir og fjölbreyttir möguleikar til íþrótta-, æskulýðs- og frístundastarfs í sveitarfélaginu. Það var því sérstakt fagnaðarefni að geta tekið húsið formlega í notkun og deilt þessum merka áfanga með íbúum sveitarfélagsins og góðum gestum.
Unnur Brá Konráðsdóttir, sveitarstjóri Borgarbyggðar, opnaði athöfnina og stýrði henni. Fjölmargir ræðumenn stigu á svið og fluttu ávörp, óskuðu sveitarfélaginu til hamingju með nýju aðstöðuna og rifjuðu upp mikilvægi þessarar uppbyggingar fyrir samfélagið.
Fluttar voru góðar ræður og heillaóskirnar voru margar. Willum Þór, fyrrverandi ráðherra og núverandi forseti ÍSÍ, Jovana og Guðveig, núverandi og fyrrverandi forsetar sveitarstjórnar, Guðrún Karitas Hallgrímsdóttir, sleggjukastari og afrekskona, auk fulltrúa KSÍ og UMFÍ, tóku öll til máls.
Boðið var upp á veglega tertu, fjölbreyttar íþróttastöðvar, blöðrudýr og andlitsmálningu.
Að lokum kom að stóru stundinni þegar Sigurður Guðmundsson, formaður byggðarráðs, flutti ávarp og kynnti nafn hússins – Hlaðan.
Nafnið Hlaðan var ein af fjölmörgum góðum hugmyndum sem bárust í nafnasamkeppni sveitarfélagsins. Að lokum voru það íbúar Borgarbyggðar sem fengu það mikilvæga hlutverk að velja nafnið.
Sveitarfélagið vill einnig færa nágrannasveitarfélögum sínum sérstakar þakkir. Fyrir hönd þeirra mætti Bjarki Þorsteinsson og færði Borgarbyggð veglega peningagjöf sem mun nýtast til tækjakaupa í Hlöðuna.
Vígslan markar mikilvæg tímamót fyrir íþrótta-, æskulýðs- og frístundastarf í Borgarbyggð og framtíðarmöguleikarnir eru fjölmargir.
Við óskum íbúum Borgarbyggðar innilega til hamingju með Hlöðuna og þessa glæsilegu nýju aðstöðu!
Tengdar fréttir

Útskolun á Grábrókarveitu
Þriðjudaginn 1. september hefja Veitur útskolun á stofnlögn vatnsveitu frá Grábrók að Borgarnesi til að tryggja eins hreint neysluvatn og kostur er. Áætlað er að vinnan taki 2–3 vikur. Á meðan útskolun stendur yfir má gera ráð fyrir lágum vatnsþrýstingi og jafnvel tímabundnu vatnsleysi hluta úr degi. Útskolunin getur einnig valdið gruggi í vatninu, einkum á ákveðnum svæðum ofarlega í Borgarfirði. …