2. mars, 2026
Fréttir

Framboð og meðmæli – mikilvægar dagsetningar og upplýsingar 

Sveitarstjórnarkosningar verða haldnar laugardaginn 16. maí 2026.
Öll framboð eru hvött til að nýta rafrænt meðmælendakerfi til söfnunar meðmæla, sem opnar 3. mars.
Nánari upplýsingar um kerfið má finna á vef Landskjörstjórnar: 
https://island.is/v/sveitarstjornarkosningar-2026/medmaelasoefnun. 

Umsóknarfrestur framboða er til og með 10. apríl 2026 kl. 12:00. Gætið þess að skila inn öllum nauðsynlegum gögnum innan tilskilins frests. 

Stofnandi meðmælasöfnunarinnar þarf að eiga lögheimili í sveitarfélaginu.  

Þar sem ekki búið er að sameina sveitarfélögin, og meðmæli eru tengd lögheimili þarf að stofna meðmælasöfnun í hvoru sveitarfélagi fyrir sig. Það er mikilvægt að hafa í huga að aðeins þeir sem hafa lögheimili í Skorradal geta mælt með framboði fyrir Skorradal, á sama hátt og þeir sem hafa lögheimili í Borgarbyggð geta mælt með lista í Borgarbyggð.  

Ef spurningar vakna eða þörf er á frekari leiðbeiningum, vinsamlegast hafið samband við yfirkjörstjórn á netfangið borgarbyggd@borgarbyggd.is eða skorradalur@skorradalur.is.  

Nánari upplýsingar um skil á framboðum verða auglýstar síðar. 

 

Tengdar fréttir

2. mars, 2026
Fréttir

LED-væðing í Borgarbyggð

Borgarbyggð vinnur nú að LED-væðingu á götulýsingu í sveitarfélaginu en um er að ræða skiptingu á eldri lömpum fyrir nýja. Með innleiðingu LED-ljósa verður lýsingin bæði bjartari og jafnari en áður, LED-ljós skila betri birtu sem eykur sýnileika á götum, stígum og opnum svæðum og stuðla þannig að auknu öryggi fyrir gangandi, hjólandi og akandi vegfarendur – sérstaklega yfir dimmustu …