Borgarbyggð vinnur nú að LED-væðingu á götulýsingu í sveitarfélaginu en um er að ræða skiptingu á eldri lömpum fyrir nýja.
Með innleiðingu LED-ljósa verður lýsingin bæði bjartari og jafnari en áður, LED-ljós skila betri birtu sem eykur sýnileika á götum, stígum og opnum svæðum og stuðla þannig að auknu öryggi fyrir gangandi, hjólandi og akandi vegfarendur – sérstaklega yfir dimmustu mánuðina. Aukið öryggi er þó aðeins einn af fjölmörgum kostum verkefnisins. LED-tæknin dregur verulega úr raforkunotkun miðað við eldri ljósabúnað. Þá hafa LED-ljós mun lengri endingartíma, sem þýðir minna viðhald, færri peruskipti og lægri rekstrarkostnað til lengri tíma litið.
Framkvæmdir munu fara fram í áföngum og verða íbúar upplýstir eftir því sem verkefninu miðar áfram. Með LED-væðingunni stígur Borgarbyggð stórt skref í átt að hagkvæmari, öruggari og grænni framtíð.
Segja má að markvisst hafi verið unnið að LED-væðingu frá miðju ári 2025. Frá þeim tíma hefur öllum biluðum ljósahöttum verið skipt út fyrir LED-hatta jafnharðan og tilkynningar berast. Í ágúst 2025 var jafnframt farið í heildarskipti á lýsingu við allar stofnanir sveitarfélagsins, en eftir standa sértæk svæði, svo sem íþrótta- og körfuboltavellir, kastarar og lýsing í stiga niður að íþróttahúsi.
,,Fenginn var ljósahönnuður til að kortleggja og greina lýsingu í þéttbýliskjörnum sveitarfélagsins með það að markmiði að samræma og bæta heildaryfirbragð og virkni lýsingar. Unnið hefur verið eftir þeirri stefnu við allar útskiptingar frá 1. júní 2025. Hönnuðurinn hefur einnig lagt til lausnir fyrir dreifbýli og forgangsraðað götum út frá ástandi og aldri búnaðar.“ segir Sóley Birna Baldursdóttir, rekstrarstjóri áhaldahúss sem hefur umsjón á verkefninu..
Forgangsvinna hefur þegar farið fram í Borgarnesi og á Kleppjárnsreykjum, þar sem nánast er lokið við útskipti. Á næstu vikum verður forgangsröðun annarra þéttbýliskjarna kláruð. Elsti búnaðurinn er í gamla bænum í Borgarnesi og stefnt er að því að hefja heildarútskipti þar í fyrsta holli.
Frá 1. júní 2025 hefur verið fjárfest í um 235 nýjum LED-ljósahöttum og nýlega bættust við 60 til viðbótar sem verða nýttir í fyrirhuguðum gatnaútskiptum á vordögum. Því er óhætt að segja að vinna hefur farið vel af stað í góðu samstarfi við verktaka/þjónustuaðlila, Vogir og lagnir ehf, Kristján ljósahönnuð hjá Hildeberg og Bjarnþór hjá Fagkaup.
Vonir standa til að verkefnið muni skila umtalsverðum sparnaði í raforkukostnaði sveitarfélagsins, draga úr viðhaldsþörf og styðja við markmið um hagkvæmni og sjálfbærni í rekstri.
Tengdar fréttir

Nýr markaðs- og úthlutunarvefur fyrir lóðir í Borgarbyggð fer í loftið
Borgarbyggð kynnir nýjan markaðs- og úthlutunarvef fyrir lóðir í sveitarfélaginu. Vefurinn er hugsaður til markaðssetningar á nýjum lóðum sem tilbúnar eru til úthlutunar í Borgarbyggð og einnig á hverfum sem brátt munu koma til úthlutunar. Þá veitir vefurinn innsýn í fjölbreytt mannlíf og aragrúa tækifæri í Borgarbyggð. Þá er hægt að skoða staðsetningu lóða, stærðir, skipulag og helstu upplýsingar á …