Mikil lífsgleði og eftirvænting einkenna upphaf sumars í Borgarbyggð en í dag hófst bæði Sumarfjör fyrir yngstu grunnskólabörnin og starfsemi Vinnuskólans fyrir eldri ungmenni.
Fyrsti dagur Sumarfjörs er í dag fyrir börn sem hafa lokið 1.–4. bekk og eru ríflega 60 börn skráð í upphafsvikur námskeiðsins. Boðið er upp á rútuferðir fyrir börn í dreifbýli á starfsstöð í byrjun dags og til baka seinnipartinn.
Sumarfjör hefur notið mikilla vinsælda undanfarin ár og verður dagskráin í sumar fjölbreytt og skemmtileg. Hver vika hefur sitt eigið þema þar sem lögð er áhersla á útivist, leiki og samveru, auk stuttra ferða og fjölbreyttra verkefna. Meðal þemavikna eru útivistarvika, vatnafjör, íþróttafjör og listafjör. Allt bendir til þess að sumarið verði ekki síður viðburðaríkt og skemmtilegt en undanfarin ár.
Í dag hófst einnig starfsemi Vinnuskólans en fyrsti dagurinn er tileinkaður fræðslu og hópefli. Ungmennin fá meðal annars fræðslu um fjármálalæsi frá Arion banka og kynningu frá sjúkraþjálfara á vegum Símenntunar um rétta líkamsbeitingu og mikilvægi góðra vinnubragða í starfi. Þá er boðið upp á grillveislu og samveru.
Alls eru 51 ungmenni skráð í Vinnuskóla Borgarbyggðar sumarið 2026. Vinnuskólinn býður ungmennum sem lokið hafa 8., 9. og 10. bekk upp á uppbyggileg sumarstörf í öruggu starfsumhverfi. Markmið starfseminnar er að undirbúa unglinga fyrir þátttöku á vinnumarkaði með áherslu á ástundun, vinnusemi, samskipti, ábyrgð og virðingu gagnvart samstarfsfólki og verkefnum. Jafnframt fá þátttakendur fræðslu um vinnubrögð, notkun verkfæra og mikilvægi góðrar samvinnu.
Skráning á sumarnámskeið er jafnframt í fullum gangi. Þegar þetta er skrifað eru 69 skráningar á fjölbreytt sumarnámskeið Borgarbyggðar. Námskeiðin eru annars vegar fyrir börn sem voru að ljúka 4. bekk og eldri og hins vegar fyrir börn sem voru að ljúka 4.-7. bekk. Boðið er upp á leikja- íþrótta-, leiklistar- og afþreyingarnámskeið með áherslu á útivist, hreyfingu, sköpun og góða samveru yfir sumartímann. Má þar nefna námskeið líkt og Stelpur í stuði, Klifurnámskeið og Parkour.
Þá í samstarfi við Frjálsíþróttafélag Borgarfjarðar verður boðið upp á frítt 3 vikna námskeið í frjálsum fyrir krakka sem voru að ljúka 4.–7. bekk. Með tilkomu nýrrar og bættrar æfingaaðstöðu í fjölnota íþróttahúsi í haust er það okkur kappsmál að auka þátttöku barna í frjálsum, en síðustu ár hefur verulega skort á æfingarpláss fyrir þau innanhúss á vetrum. Þjálfari námskeiðsins er Sigursteinn Ásgeirsson, Íslands- og bikarmeistari í kúluvarpi og landsliðsmaður í frjálsum.
Það er því óhætt að segja að sumarið sé komið á fullt í Borgarbyggð með fjölbreyttum tækifærum fyrir börn og ungmenni til leikja, náms, hreyfingar og samveru.
Tengdar fréttir

Breyting á útgáfu og móttöku reikninga vegna sameiningar Borgarbyggðar og Skorradalshrepps
Sameining Skorradalshrepps og Borgarbyggðar var samþykkt í íbúakosningu í september á síðasta ári og tók sameiningin gildi 01.06.2026. Kosið var í sveitarstjórn sameiginlegs sveitarfélags í sveitarstjórnarkosningunum 16. maí s.l. Ákveðið hefur verið að sameinað sveitarfélag skuli nota kennitölu Borgarbyggðar og mun skrifstofa Borgarbyggðar sjá um móttöku og greiðslu reikninga sameinaðs sveitarfélags frá og með 01.06.2026. Hér með er því farið …