Hugrún Harpa Ólafsdóttir gegndi hlutverki Fjallkonunnar við hátíðarhöld Borgarbyggðar á 17. júní í ár.
Hugrún er nýstúdent frá Menntaskóla Borgarfjarðar og hefur verið virk í leiklist, félagslífi og margvíslegu starfi í skólanum.
Við hátíðarhöld dagsins flutti Hugrún Harpa ljóðið Talað við ungt fólk eftir Guðmund Böðvarsson. Hugrún Harpa heimsótti einnig heimilisfólk á Brákarhlíð þar sem hún flutti ljóðið við mikla hrifningu og hlaut mikið lof og þakklæti fyrir.
Borgarbyggð óskar henni velfarnaðar fyrir komandi framtíð.
Tengdar fréttir

Hátíðarræða sveitarstjóra á 17. júní
Kæru íbúar Borgarbyggðar. Það er mér mikill heiður að ávarpa ykkur hér í dag á einum merkasta degi ársins. Í dag, á fæðingardegi Jóns Sigurðssonar, fögnum við því stærsta og dýrmætasta sem við eigum, frelsi okkar. Það þurfti kjark til að berjast fyrir því frelsi. Þeir voru til sem efuðust. En saga lýðveldisins okkar er mjög merkileg. Við vorum meðal …