Skráning er hafin á fjölbreytt og skemmtileg sumarnámskeið fyrir börn í Borgarbyggð. Boðið verður upp á leikja- íþrótta-, leiklistar- og afþreyingarnámskeið með áherslu á útivist, hreyfingu, sköpun og góða samveru yfir sumartímann.
Fjölbreytt og mikið úrval spennandi sumarnámskeiða í boði. Námskeiðin eru annarsvegar fyrir börn sem voru að ljúka 4. bekk og eldri og fyrir börn sem voru að ljúka 4. -7. bekk. Þá er námskeiðið Leik og Sprell fyrir 6 ára og eldri.
Hér má nálgast ýmsar upplýsingar og nánari upplýsingar um einstök námskeið ásamt skráningu á þau.
Vegna takmarkaðs pláss er foreldrum bent á að skrá börn tímanlega.
Hægt er að nýta frístundastyrk á öll námskeiðin.
Tengdar fréttir

Sumarlokun Ráðhúss Borgarbyggðar 2026
Vegna sumarleyfa verður Ráðhús Borgarbyggðar lokað frá og með 20.júlí til 4.ágúst. Ef erindið getur ekki beðið má á þessum tíma senda tölvupóst á netfangið borgarbyggd@borgarbyggd.is Einhver röskun getur orðið á útgáfu reikninga vegna gjalda á vegum sveitarfélagsins á þessum tíma þ.e. reikningar gætu borist aðeins seinna en vant er. Eindagi gjalda/reikninga mun samt sem áður alltaf vera 30 dagar. Síðasti …

Átak gegn útbreiðslu kerfils í Borgarbyggð
Átak gegn útbreiðslu kerfils í Borgarbyggð Borgarbyggð hvetur íbúa til að taka höndum saman í sameiginlegu átaki til að stemma stigu við ört vaxandi útbreiðslu kerfils í héraðinu. Á undanförnum árum hefur kerfill dreift sér hratt um svæði í sveitarfélaginu og víða náð fótfestu þar sem hann skyggir á og ryður burt náttúrulegum gróðri. Kerfillinn dreifir sér bæði með fræjum …