3. júlí, 2026
Fréttir

Átak gegn útbreiðslu kerfils í Borgarbyggð

Borgarbyggð hvetur íbúa til að taka höndum saman í sameiginlegu átaki til að stemma stigu við ört vaxandi útbreiðslu kerfils í héraðinu. Á undanförnum árum hefur kerfill dreift sér hratt um svæði í sveitarfélaginu og víða náð fótfestu þar sem hann skyggir á og ryður burt náttúrulegum gróðri. Kerfillinn dreifir sér bæði með fræjum og rótarskotum og getur myndað stórar breiður sem erfitt er að uppræta ef ekki er gripið til samstilltra aðgerða.

 

Á sumum svæðum innan sveitarfélagsins er útbreiðslan orðin það mikil að hætta er á að kerfill verði ráðandi tegund ef ekkert er að gert.

 

Sveitarfélagið hvetur íbúa, landeigendur og bændur til að fylgjast vel með kerfli í sínu nærumhverfi og grípa til aðgerða þar sem hann er að byrja að festa rætur. Mikilvægt er að kippa upp stökum plöntum og slá stærri breiður áður en fræmyndun hefst, en kerfillinn er á þessum tíma árs að undirbúa dreifingu fræja. Átak að vor skilar enn betri árangri, þar sem auðveldast er að uppræta plöntuna snemma sumars.

 

Borgarbyggð og áhaldahús munu áfram sinna eyðingu kerfils eftir bestu getu á svæðum heyra undir Borgarbyggð.

 

 

 

Tengdar fréttir

14. ágúst, 2026
Fréttir

Framkvæmdir á Hringveginum í gegnum Borgarnes

Sunnudagskvöldið 16. ágúst og mánudagskvöldið 17. ágúst er stefnt á að fræsa Hringveginn í gegnum Borgarnes frá Borgarbraut að brú yfir Borgarfjörð. Veginum er lokað á meðan framkvæmdir standa yfir en  merkt verður hjáleið um Borgarfjarðarbraut. Áætlað er að framkvæmdirnar standi frá kl. 21:00 til kl. 07:00 bæði kvöld . Merkingar og upplýsingaskilti verða sett upp skv. viðhengdri merkingaráætlun, sem að má finna hér, Lokunarplan Vegfarendur eru …

12. ágúst, 2026
Fréttir

Ert þú að bjóða upp á íþrótta- eða tómstundastarf fyrir börn og ungmenni í Borgarbyggð?

Nú er verið að taka saman framboðsbækling fyrir komandi starfsár og viljum við tryggja að sem flestir aðilar eigi þar sinn stað. Ef þú býður upp á námskeið, æfingar, klúbbastarf eða aðra tómstunir fyrir börn og ungmenni, þá hvetjum við þig til að senda okkur upplýsingar á sonjalind@borgarbyggd.is. Frestur til að senda inn upplýsingar er til og með 17. ágúst nk.