Stóri plokkdagurinn fer fram næsta sunnudag og eru íbúar hvattir til að taka þátt og plokka í sínu nærumhverfi. Sama dag hefst einnig Mannræktarvika í Borgarbyggð, sem stendur frá 26. apríl til 3. maí. Markmið vikunnar er að efla samkennd, jákvæðni, gleði og virðingu í samfélaginu og hvetja okkur til að sýna hvert öðru hlýju í daglegu lífi.
Félagar í Rotary taka á móti þátttakendum í Hjálmakletti í Borgarnesi kl. 10:00 þar sem hægt verður að nálgast glæra poka fyrir plokkið. Einnig er hægt að mæta í Skallagrímsgarð kl. 11:00, en að sjálfsögðu geta allir hafið plokkun hvar sem er í sveitarfélaginu.
Klukkan 13:00 verður svo grillað í Skallagrímsgarði og boðið upp á pylsur, Ungmennaráð verður á staðnum og stendur fyrir skemmtilegum leikjum- öll eru velkomin að koma og njóta.
Tengdar fréttir

Kjörskrá vegna sveitarstjórnarkosninga 2026
Kjörskrá vegna sameiginlegra sveitarstjórnarkosninga Borgarbyggðar og Skorradalshrepps sem fer fram þann 16. maí 2026, liggur nú frammi í þjónustuveri Ráðhúss Borgarbyggðar, Digranesgötu 2. Athugasemdir við kjörskrá skal senda beint til Þjóðskrár. Kjósendur geta einnig kannað hvar þeir eru á kjörskrá hér Kjósendur eru hvattir til að athuga í hvaða kjördeild þeir eiga að kjósa og hafa persónuskilríki með sér á …