Kjörskrá vegna sameiginlegra sveitarstjórnarkosninga Borgarbyggðar og Skorradalshrepps sem fer fram þann 16. maí 2026, liggur nú frammi í þjónustuveri Ráðhúss Borgarbyggðar, Digranesgötu 2.
Athugasemdir við kjörskrá skal senda beint til Þjóðskrár.
Kjósendur geta einnig kannað hvar þeir eru á kjörskrá hér
Kjósendur eru hvattir til að athuga í hvaða kjördeild þeir eiga að kjósa og hafa persónuskilríki með sér á kjörstað.
Á kjördag verður yfirkjörstjórn Borgarbyggðar með aðsetur í Hjálmakletti í Borgarnesi.
Tengdar fréttir

Stóri plokkdagurinn og upphaf mannræktarviku
Stóri plokkdagurinn fer fram næsta sunnudag og eru íbúar hvattir til að taka þátt og plokka í sínu nærumhverfi. Sama dag hefst einnig Mannræktarvika í Borgarbyggð, sem stendur frá 26. apríl til 3. maí. Markmið vikunnar er að efla samkennd, jákvæðni, gleði og virðingu í samfélaginu og hvetja okkur til að sýna hvert öðru hlýju í daglegu lífi. Félagar í …