13. október, 2025
Fréttir
Starfamessa er viðburður þar sem fyrirtæki, stofnanir og menntastofnanir kynna störf, starfsgreinar og menntunartækifæri fyrir nemendum grunn- og framhaldsskóla og öðrum áhugasömum.
Slíkar messur hafa verið vinsælar meðal grunn- og framhaldsskólanema sem vilja kynna sér framtíðarmöguleika betur, bæði varðandi nám og störf. Fyrirtæki og stofnanir nota messuna til að kynna starfsemi sína.

Markmið Starfamessu:

  • Að kynna fjölbreytt námstækifæri á Vesturlandi
  • Að kynna fjölbreytt atvinnutækifæri á Vesturlandi.
  • Að skapa beint samtal milli nemenda og atvinnulífsins.
  • Að auka meðvitund um hvaða menntun og færni skiptir máli í framtíðarstörfum.
  • Að virkja nemendur í gegnum ratleik og aðrar gagnvirkar aðferðir.

Markmið messunnar er að gefa gestum innsýn í fjölbreytt störf og starfsleiðir sem finna má innan fyrirtækja og stofnana á svæðinu – með það að leiðarljósi að kveikja áhuga og varpa ljósi á möguleika framtíðarinnar.

Nemendur úr 9. og 10. bekk í grunnskólum í Borgarbyggð, Dalabyggð og Hvalfjarðarsveit og nemendur í MB heimsækja starfamessuna að morgni og svo er opið fyrir almenning milli klukkan 11:30 og 13:30

Tengdar fréttir

6. október, 2026
Fréttir

Umhverfisviðurkenningar Borgarbyggðar 2026

Umhverfis- og landbúnaðarnefnd Borgarbyggðar veitti í morgun árlegar viðurkenningar til einstaklinga og fyrirtækja sem skara fram úr í umhirðu og fegrun umhverfis í sveitarfélaginu. Nefndin veitir árlega viðurkenningar fyrir snyrtilegar og vel hirtar lóðir og jarðir með því markmiði að hvetja íbúa og fyrirtæki til að leggja sitt af mörkum til að fegra umhverfið og stuðla að jákvæðu og samheldnu …

6. október, 2026
Fréttir

Leikskólinn Ugluklettur tilnefndur til Íslensku menntaverðlaunanna 2026

Leikskólinn Ugluklettur hefur hlotið tilnefningu til Íslensku menntaverðlaunanna 2026 fyrir þróunarverkefnið Stilla – hæglátt leikskólastarf. Viðurkenningarráð Íslensku menntaverðlaunanna hefur nú tilkynnt um tilnefningar til verðlaunanna í ár. Tilnefning Ugluklettar er í flokki þróunarverkefna og er hún mikil viðurkenning fyrir það metnaðarfulla starf sem unnið hefur verið að innan leikskólans. Þetta er í sjöunda sinn sem Íslensku menntaverðlaunin eru veitt eftir …