21. maí, 2026
Fréttir

Borgarbyggð hefur nú afhent öllum leik- og grunnskólum sveitarfélagsins sérstök sólmyrkvagleraugu í tilefni af almyrkvanum sem verður sjáanlegur á Íslandi þann 12. ágúst 2026.
Markmiðið er að tryggja að öll börn í sveitarfélaginu geti fylgst með þessum einstaka náttúruviðburði á öruggan og skemmtilegan hátt.
Leik- og grunnskólar Borgarbyggðar dreifa svo gleraugunum til barna á næstu vikum.

Almyrkvi á sólu sést afar sjaldan frá Íslandi en þann 12. ágúst 2026 mun almyrkvi ganga yfir stóran hluta landsins, þar á meðal Vesturland. Þetta verður í fyrsta sinn síðan árið 1954 sem almyrkvi sést frá Íslandi, er næsti almyrkvi er 26. júni 2196.

Gleraugun sem afhent voru eru sérstaklega hönnuð til að fylgjast með sólmyrkvanum og stórum sólblettum á öruggan hátt. Þau eru CE- og ISO-vottuð og uppfylla ströngustu öryggiskröfur samkvæmt EN ISO 12312-2:2015 staðlinum.

Gleraugun veit meðal annars, 100% vernd gegn útfjólubláu ljósi og innrauðu ljósi auk þess að sía burt 99,999% af styrk sólarljóssins.

Mikilvægt er að nota sólmyrkvagleraugun allan tímann meðan horft er í átt að sólinni. Þegar almyrkvinn nær hámarki og sólin hverfur alveg bak við tunglið er óhætt að taka gleraugun af sér og njóta sjónarspilsins með berum augum í þann stutta tíma sem almyrkvinn stendur yfir.

Borgarbyggð hvetur íbúa til að kynna sér sólmyrkvann betur og bendir á vefinn sólmyrkvi2026 en þar er að finna upplýsingar og fróðleik varðandi almyrkva á sólu.
Hægt er að nálgast sólmyrkvagleraugu í ráðhús Borgarbyggðar, Digranesgötu 2, á meðan birgðir endast.

Leikskólabörn í Borgarbyggð máta hér sólmyrkvagleraugu

Leikskólabörn í Borgarbyggð máta hér sólmyrkvagleraugu

Tengdar fréttir

6. júlí, 2026
Fréttir

Sumarlokun Ráðhúss Borgarbyggðar 2026

Vegna sumarleyfa verður Ráðhús Borgarbyggðar lokað frá og með 20.júlí til 4.ágúst. Ef erindið getur ekki beðið má á þessum tíma senda tölvupóst á netfangið borgarbyggd@borgarbyggd.is Einhver röskun getur orðið á útgáfu reikninga vegna gjalda á vegum sveitarfélagsins á þessum tíma þ.e. reikningar gætu borist aðeins seinna en vant er. Eindagi gjalda/reikninga mun samt sem áður alltaf vera 30 dagar. Síðasti …

3. júlí, 2026
Fréttir

Átak gegn útbreiðslu kerfils í Borgarbyggð

Átak gegn útbreiðslu kerfils í Borgarbyggð Borgarbyggð hvetur íbúa til að taka höndum saman í sameiginlegu átaki til að stemma stigu við ört vaxandi útbreiðslu kerfils í héraðinu. Á undanförnum árum hefur kerfill dreift sér hratt um svæði í sveitarfélaginu og víða náð fótfestu þar sem hann skyggir á og ryður burt náttúrulegum gróðri. Kerfillinn dreifir sér bæði með fræjum …