16. febrúar, 2026
Fréttir

Söfnun á rúlluplasti fer fram nú í lok vikunnar (12.-20. janúar) og áfram í byrjun næstu viku.
Bændur eru beðnir um að hafa plastið vel til reiðu og aðgengilegt þannig að hægt sé að sækja það fljótt og örugglega.

Mikilvægt varðandi söfnun núna

  • Bændur skulu tryggja að plastið sé snyrtilega frá gengið.
  • Aðeins má skila rúlluplasti – ekki öðru plasti, neti eða öðru efni.

Næstu fyrirhuguðu plastsafnanir 2026

Eftir söfnunina í þessari og næstu viku verða næstu söfnunartímabil sem hér segir:

  • 20.–30. apríl
  • 6.–10. júlí
  • 7.–11. september
  • 9.–13. nóvember

Mikilvægt um söfnun á þessum dögum

Eftir þessa fyrstu söfnun er gerð krafa um litaflokkun í framhaldinu.
Það þýðir að:

  • Halda þarf öllum litum aðskildum.
  • Plast skal vera vel hreinsað og snyrtilega frá gengið.
  • Ekki má skila plasti í pokum.
  • Aðeins er tekið á móti rúlluplasti.
  • Ekki er sótt plast sem er í lausu eða í gámum.

Borgarbyggð hvetur bændur til að fylgja þessum reglum svo söfnunin gangi sem greiðast.

Tengdar fréttir

16. febrúar, 2026
Fréttir

Þjónustukönnun Borgarbyggðar 2026

Borgarbyggð hefur lagt fyrir þjónustukönnun með það að markmiði að kanna upplifun íbúa af þjónustu sveitarfélagsins og greina tækifæri til umbóta þar sem þörf er á. Könnun þessi er mikilvægur liður í að fá skýra mynd af viðhorfum til þjónustunnar. Við leggjum mikla áherslu á að hlusta á raddir íbúa og fá skýra mynd af því sem vel er gert …