Borgarbyggð hefur lagt fyrir þjónustukönnun með það að markmiði að kanna upplifun íbúa af þjónustu sveitarfélagsins og greina tækifæri til umbóta þar sem þörf er á.
Könnun þessi er mikilvægur liður í að fá skýra mynd af viðhorfum til þjónustunnar. Við leggjum mikla áherslu á að hlusta á raddir íbúa og fá skýra mynd af því sem vel er gert og því sem má gera betur.
Könnunin er nafnlaus og niðurstöðurnar munu verða nýttar með markvissum hætti til að bæta þjónustu við íbúa og aðra þjónustuþega sveitarfélagsins.
Borgarbyggð þakkar öllum kærlega fyrir þátttökuna og fyrir að leggja sitt af mörkum við að þróa og efla þjónustuna enn frekar.
Þjónustukönnun má finna hér
Tengdar fréttir

Elín Friðriksdóttir kjörin í stjórn Félags stjórnenda leikskóla
Stjórnarkjör Félags stjórnenda leikskóla fór fram dagana 9. til 11. febrúar. Á kjörskrá voru 476 félagsmenn en 266 greiddu atkvæði, eða 55,88%. Alls voru ellefu í kjöri, en kosið var um fjögur sæti í aðalstjórn og þrjú í varastjórn. Elín Friðriksdóttir, aðstoðarleikskólastjóri á Uglukletti hlaut flest talin atkvæði og hlýtur því sæti í aðalstjórn. Það er mikið gleðiefni að eiga …