Næsta söfnun á rúlluplasti stendur þessa vikuna 20. apríl-25. apríl og fram í næstu viku.
Samkvæmt fyrirkomulagi er byrjað að safna vestast á Mýrunum, Hraunhreppi og Kolbeinsstaðarhreppi, að því loknu er safnað upp í Norðurárdal og tökum svo dalina koll af kolli niður að Andakíl.
Við viljum minna á að rúlluplastið þarf að vera í böggum: hvítt sér, svart sér og grænt, blátt, bleikt saman. Rúlluplastið þarf að vera hreint af öllu rusli, heyi og drullu.
Plastið má ekki vera í stórsekkjum né öðrum pokum, og þarf plastið að vera aðgengilegt.
Við tökum einnig stórsekki hjá bændum, en þurfa þeir þá að vera sameinaðir saman í t.d. einn stórsekk.
Tengdar fréttir

Ragnar Heiðar nýr umsjónarmaður Hjálmakletts
Ragnar Heiðar Sigtryggsson hefur verið ráðinn sem umsjónarmaður Hjálmakletts. Ragnar er með B.cs í viðskiptafræði með áherslu á markaðsfræði og hefur tekið að sér að útbúa kynningarefni fyrir hin ýmsu fyrirtæki. Þá starfaði hann á fjármála- og stjórnýslusviði hjá Ísafjarðarbæ á árunum 2016 – 2019 og hjá Innheimtustofnun sveitarfélaga á árunum 2019-2022. Ragnar hefur töluverða reynslu af viðburðastjórnun og rekstri …