26. nóvember, 2026
Fréttir

Mannamót Markaðsstofa landshlutanna verður haldin fimmtudaginn 28. janúar 2027 í Kórnum í Kópavogi.
Þar gefst ferðaþjónustuaðilum tækifæri til að kynna sér fjölbreytta þjónustu og afþreyingu sem landsbyggðin hefur upp á að bjóða og efla tengsl innan ferðaþjónustunnarMannamót er mikilvægur kynningarvettvangur fyrir ferðaþjónustufyrirtæki á landsbyggðinni og vettvangur til að mynda ný tengsl og skapa tækifæri til samstarfs með kynningu á sinni starfsemi.

Einungis samstarfsfyrirtæki Markaðsstofa landshlutanna geta tekið þátt, en öllum er frjálst að sækja viðburðinn og er aðgangur ókeypis.

Dagarnir 26. – 28. janúar 2027 verða helgaðir ferðaþjónustu. Þá verður lögð áhersla á að auka vitund um mikilvægi ferðaþjónustu og efla samstarf og fagmennsku í greininni með fróðlegri og skemmtilegri dagskrá undir merkjum Ferðaþjónustuvikunnar.

Að Ferðaþjónustuvikunni standa Markaðsstofur landshlutanna, Íslenski ferðaklasinn, Samtök ferðaþjónustunnar, Ferðamálastofa og Íslandsstofa.

Nánari upplýsingar um Ferðaþjónustuvikuna má finna á hér.

Tengdar fréttir

23. nóvember, 2026
Fréttir

Aðventuhátíð Borgarbyggðar 2026

Við bjóðum ykkur öll hjartanlega velkomin að eiga notalega og hátíðlega stund saman á aðventuhátíð Borgarbyggðar, sunnudaginn þann 29. nóvember. Í Safnahúsi Borgarbyggðar verður opið frá kl. 13:00–16:00 þar sem gestum er boðið í jólaföndur í notalegu umhverfi. Kl. 15:15 kemur Æskukórinn undir stjórn Theodóru Þorsteinsdóttur og syngur fyrir okkur falleg jólalög. Kaffi og piparkökur verða í boði fyrir gesti. …