Við bjóðum ykkur öll hjartanlega velkomin að eiga notalega og hátíðlega stund saman á aðventuhátíð Borgarbyggðar, sunnudaginn þann 29. nóvember.
Í Safnahúsi Borgarbyggðar verður opið frá kl. 13:00–16:00 þar sem gestum er boðið í jólaföndur í notalegu umhverfi.
Kl. 15:15 kemur Æskukórinn undir stjórn Theodóru Þorsteinsdóttur og syngur fyrir okkur falleg jólalög. Kaffi og piparkökur verða í boði fyrir gesti.
Að því loknu færum við okkur í Skallagrímsgarð þar sem dagskrá hefst kl. 16:00 og við tendrum jólaljósin á einu fallegasta jólatréi landsins. Jólasveinarnir kíkja í heimsókn, Æskukórinn syngur vel valin jólalög, Unnur Brá Konráðsdóttir sveitarstjóri flytur jólahugvekju og boðið verður upp á smákökur og heitt súkkulaði.
Jólamarkaður Öldunnar verður að sjálfsögðu einnig á sínum stað.
Kynnir verður Ernir Daði Arnbergz.
Tökum daginn frá, njótum samverunnar og eigum saman yndislega stund í aðdraganda jóla!
Tengdar fréttir

Framkvæmdir við Kveldúlfsgötu 24–30 að hefjast
Borgarbyggð vekur athygli á því að framkvæmdir eru að hefjast við fjölbýlishús að Kveldúlfsgötu 24–30 og aðliggjandi leiksvæði. Upphaf framkvæmda hefur tafist vegna ábendinga sem bárust við upphaf verksins sem teknar voru til skoðunar. Framkvæmdirnar fela meðal annars í sér úrbætur á umferðaröryggi, stígagerð, uppsetningu girðinga, hellulagnir og frágang á svæðinu. Áætlað er að verkið taki um þrjár vikur, en …