30. september, 2026
Fréttir

Karlarnir í skúrnum smíðuðu þessa glæsilegu trébíla og þátttakendur í Öldunni – vinnustofu og hæfingu, gáfu þeim líf og liti.

Karlarnir í skúrnum er vettvangur þar sem karlmenn koma saman í notalegu umhverfi. En um er að ræða samstarfsverkefni félagsþjónustu Borgarbyggðar og Öldunnar þar sem hægt er að vinna að sameiginlegum eða persónulegum verkefnum, deila hugmyndum eða bara eiga ánægjulegar stundir yfir kaffibolla og góðu spjalli.
Þátttakendur ráða svo sjálfir hvaða verkefni þeir taka sér fyrir hendur og vinna á sínum eigin hraða.

Hefur þú áhuga á að brasa í góðum félagsskap? Við hvetjum áhugasama til að kíkja í heimsókn.

Tengdar fréttir

29. september, 2026
Fréttir

Barnó 2026 opnar með pompi og prakt í Ólafsvík

Barnamenningarhátíð Vesturlands – Barnó 2026 verður formlega sett í Klifi í Ólafsvík fimmtudaginn 1. október kl. 18:00. Þar verður hátíðinni hleypt af stokkunum með skemmtilegri dagskrá, tónlist, gleði og að sjálfsögðu biluðu stuði! Barnó fer fram víðs vegar um Vesturland og í ár telur dagskráin hvorki meira né minna en 65 fjölbreytt atriði, ætluð börnum og ungmennum frá leikskólaaldri og …