29. september, 2026
Fréttir

Barnamenningarhátíð Vesturlands – Barnó 2026 verður formlega sett í Klifi í Ólafsvík fimmtudaginn 1. október kl. 18:00. Þar verður hátíðinni hleypt af stokkunum með skemmtilegri dagskrá, tónlist, gleði og að sjálfsögðu biluðu stuði!
Barnó fer fram víðs vegar um Vesturland og í ár telur dagskráin hvorki meira né minna en 65 fjölbreytt atriði, ætluð börnum og ungmennum frá leikskólaaldri og upp í 18 ára.

Opnunarhátíðin er öllum opin og fjölskyldur eru sérstaklega hvattar til að mæta – og að sjálfsögðu að taka börnin með!
Nánari upplýsingar um opnunarhátíðina og dagskrá Barnó má finna á viðburðasíðu opnunarhátíðíðarinnar og á Facebook.

Lifi barnamenningin – því við erum BEST, MEST, VEST!

Tengdar fréttir

29. september, 2026
Fréttir

Ungmennaþing Vesturlands 2026 haldið í Borgarnesi

Ungmennaþing Vesturlands var haldið á Hótel Borgarnesi dagana 25. til 27. september 2026 og heppnaðist einstaklega vel, en Borgarbyggð sá um að halda Ungmennaþing Vesturlands þetta árið. Saman  komin voru 41 ungmenni víðsvegar að af Vesturlandi til að ræða málefni sem brenna á ungu fólki og móta sameiginlega sýn á framtíð svæðisins. Dagskrá þingsins einkenndist af líflegum umræðum, vinnustofum og …