9. apríl, 2026
Fréttir

Yfirkjörstjórn mun þá taka á móti framboðslistum á skrifstofu Borgarbyggðar að Digranesgötu 2, 1. hæð milli kl. 10.00 og 12.00. Meðmælendalistum skal skilað í gegnum rafrænt meðmælakerfi á www.island.is og/eða á pappír.

Yfirkjörstjórn boðar einnig til fundar mánudaginn 13. apríl n.k. kl. 13.00 á skrifstofu Borgarbyggðar, Digranesgötu 4, 3. hæð þar sem hún úrskurðar um framkomna framboðslista að viðstöddum umboðsmönnum listanna. 

Þegar yfirkjörstjórn hefur úrskurðað um framboðin mun hún auglýsa framboðslista, bókstaf listanna og nöfn frambjóðenda á hverjum lista í réttri röð, á heimasíðu Borgarbyggðar og Skorradalshrepps og í bæjarblöðunum. 

Frekari upplýsingar um sveitarstjórnarkostningar má finna hér.

 

Yfirkjörstjórn Borgarbyggðar og Skorradalshrepps, 

Sveinbjörn Eyjólfsson 

Sóley Sigurþórsdóttir 

Jökull Helgason

Tengdar fréttir

28. apríl, 2026
Fréttir

Laus störf til umsóknar hjá Borgarbyggð

Á ráðningarvef Borgarbyggðar er að finna yfirlit yfir öll þau fjölbreyttu störf sem í boði eru hjá sveitarfélaginu. Ýmist er um að ræða framtíðarstarf, fullt starf eða hlutastarf sem tilvalið er með skóla. Markmið Borgarbyggðar er að hafa ávallt á að skipa hæfum, áhugasömum og traustum starfsmönnum sem sýna frumkvæði í starfi, veita íbúum þess góða þjónustu og geta brugðist …

27. apríl, 2026
Fréttir

Tilkynning frá Veitum vegna framkvæmda í Kvíaholti

Vegna tengingar parhúss við Kvíaholt munu Veitur loka seinni gatnamótum Kvíaholts og Stöðulsholts. Lokunin er fyrirhuguð þriðjudaginn 28. apríl 2026 og áætlað er að gatnamótin opni aftur 30. apríl 2026 (með fyrirvara um breytingar). Við biðjum vegfarendur og íbúa að sýna þolinmæði og aðgát þegar farið er um svæðið meðan á framkvæmdum stendur.