Á ráðningarvef Borgarbyggðar er að finna yfirlit yfir öll þau fjölbreyttu störf sem í boði eru hjá sveitarfélaginu. Ýmist er um að ræða framtíðarstarf, fullt starf eða hlutastarf sem tilvalið er með skóla.
Markmið Borgarbyggðar er að hafa ávallt á að skipa hæfum, áhugasömum og traustum starfsmönnum sem sýna frumkvæði í starfi, veita íbúum þess góða þjónustu og geta brugðist við síbreytilegum þörfum sveitarfélagsins. Jafnframt er markmið Borgarbyggðar að vera eftirsóttur vinnustaður á Vesturlandi, að öll hafi jöfn tækifæri í starfi og að vinnustaðir bæjarins endurspegli fjölbreytileika samfélagins.
Laus störf til umsóknar frá 28. apríl 2026
Deildarstjóri við leikskólann Ugluklett- Fullt starf, Borgarnes. Umsóknarfrestur til 6. maí 2026
Deildarstjóri við leikskólann Klettaborg- Fullt starf, Borgarnes. Umsóknarfrestur til 10. maí 2026
Forstöðumaður íþróttamannvirkja – Fullt starf, Borgarnes. Umsóknarfrestur til 12. maí 2026
Stuðningsfulltrúi í frístund í Borgarnesi og á Hvanneyri – Hlutastarf, Borgarnes.
Leiðbeinandi í sumarfjöri – Sumarstarf, Borgarnes. Umsóknarfrestur til 5. maí 2026
Leikskólakennari á Hnoðrabóli – Fullt starf, Borgarfjörður. Umsóknarfrestur til 4. maí 2026
Flokkstjórar í Vinnuskóla Borgarbyggðar – Borgarnes.
Nánari lýsingu og umsóknir er að finna á starfasíðu Borgarbyggðar hér
Tengdar fréttir

Tilkynning frá Veitum vegna framkvæmda í Kvíaholti
Vegna tengingar parhúss við Kvíaholt munu Veitur loka seinni gatnamótum Kvíaholts og Stöðulsholts. Lokunin er fyrirhuguð þriðjudaginn 28. apríl 2026 og áætlað er að gatnamótin opni aftur 30. apríl 2026 (með fyrirvara um breytingar). Við biðjum vegfarendur og íbúa að sýna þolinmæði og aðgát þegar farið er um svæðið meðan á framkvæmdum stendur.