Sigurður Kristjánsson hefur tekið við stöðu fjármálastjóra Borgarbyggðar en hann hóf störf í dag, 20. janúar.
Sigurður er með BS-gráðu í viðskiptafræði frá Háskólanum á Bifröst og býr yfir yfirgripsmikilli reynslu af fjármálastýringu. Hann starfaði sem fjármálastjóri Lyfju á árunum 2000–2024 og hefur þar með áratuga reynslu af fjármálum og rekstri stórra fyrirtækja. Undanfarin misseri starfaði hann jafnframt sem sviðsstjóri reikningshalds og uppgjörs hjá Festi.
Eiríkur Ólafsson hefur gegn starfi fjármálastjóra hjá Borgarbyggð um árabil og mun hann sjá um að koma eftirmanni sínum inn í starfið. Eiríkur mun í framhaldinu starfa áfram hjá sveitarfélaginu í öðrum verkefnum og breyttu starfshlutfalli.
Borgarbyggð býður Sigurð velkominn til starfa og óskum við honum velfarnaðar í nýju hlutverki.
Tengdar fréttir

Ungt fólk mótar framtíðarsýn í Borgarbyggð
Þann 10. mars síðastliðinn fór fram sveitarstjórnarfundur unga fólksins í Borgarbyggð. Fundurinn er haldinn með svipuðu sniði og hefðbundinn sveitarstjórnarfundur þar sem fulltrúar í Ungmennaráði Borgarbyggðar taka þátt ásamt kjörnum sveitarstjórnarfulltrúum. Á fundinum kynntu ungmennin helstu áherslumál ungmennaráðs og ræddu þau við sveitarstjórn. Erindi fulltrúa ungmennaráðs voru fjölbreytt og snertu meðal annars forvarnir, íþrótta- og tómstundamál, skólastarf og geðheilsu ungmenna …

Ný og bætt aðstaða í íþróttamiðstöðinni í Borgarnesi
Endurbótum á búningsklefum í íþróttamiðstöðinni í Borgarnesi er nú lokið og hafa bæði karla- og kvennaklefar verið opnaðir á ný eftir framkvæmdir síðustu mánaða. Framkvæmdir við karlaklefann hófust um miðjan nóvember 2025. Þar var rýmið stækkað, skipulagi breytt og nýjum sturtum bætt við til að bæta aðstöðu gesta. Um miðjan janúar 2026 var kvennaklefanum einnig lokað vegna endurbóta. Í þeim …