13. mars, 2026
Fréttir

Endurbótum á búningsklefum í íþróttamiðstöðinni í Borgarnesi er lokið og hafa bæði karla- og kvennaklefar verið opnaðir á eftir framkvæmdir síðustu mánaða.

Framkvæmdir við karlaklefann hófust um miðjan nóvember 2025. Þar var rýmið stækkað, skipulagi breytt og nýjum sturtum bætt við til bæta aðstöðu gesta.

Um miðjan janúar 2026 var kvennaklefanum einnig lokað vegna endurbóta. Í þeim framkvæmdum var meðal annars farið í endurnýjun á sturtum og salernisaðstöðu.

Með breytingunum hefur aðstaða í íþróttamiðstöðinni tekið verulegum framförum og eru klefarnir rúmbetri, nútímalegri og einstaklega glæsilegir.

Í fréttinni einnig sjá myndir af hönnun nýrra vatnsrennibrauta sem fyrirhugað er setja upp við sundlaugina í Borgarnesi.
Fyrirtækið Á. Óskarsson er með verkið og er áætlað framkvæmdir hefjist um miðjan maí. Gert er ráð fyrir framkvæmdin taki um 5–6 vikur.

Íbúar og gestir eru hvattir til kíkja í sund og nýta sér nýju aðstöðuna.

Ný hönnun á vatnsrennibrautum við sundlaugina í Borgarnesi

Karlaklefinn hefur verið stækkaður

 

Ný hönnun á vatnsrennibrautum við sundlaugina í Borgarnesi

Ný hönnun á vatnsrennibrautum við sundlaugina í Borgarnesi

Tengdar fréttir

13. mars, 2026
Fréttir

Ungt fólk mótar framtíðarsýn í Borgarbyggð

Þann 10. mars síðastliðinn fór fram sveitarstjórnarfundur unga fólksins í Borgarbyggð. Fundurinn er haldinn með svipuðu sniði og hefðbundinn sveitarstjórnarfundur þar sem fulltrúar í Ungmennaráði Borgarbyggðar taka þátt ásamt kjörnum sveitarstjórnarfulltrúum. Á fundinum kynntu ungmennin helstu áherslumál ungmennaráðs og ræddu þau við sveitarstjórn. Erindi fulltrúa ungmennaráðs voru fjölbreytt og snertu meðal annars forvarnir, íþrótta- og tómstundamál, skólastarf og geðheilsu ungmenna …