Sólrún Halla Bjarnadóttir hefur verið ráðin í starf skólastjóra við Grunnskólann í Borgarnesi.
Sólrún er með M.Ed í stjórnun menntastofnana frá Háskóla Íslands, B.Ed í íþrótta- og heilsufræðum og B.Ed í leikskólakennarafræðum.
Auk þess hefur hún lokið viðbótardiplómu á meistarastigi í menntastjórnun og matsfræði og aðra diplómu á meistarastigi í hagnýtri stærðfræði í náms- og kennslufræðum.
Sólrún Halla er með góða reynslu af stjórnun og kennslu í grunnskóla. Hún hefur starfað sem deildarstjóri við Grunnskóla Borgarfjarðar frá 2017. Á árunum 2013-2017 starfaði hún sem umsjónarkennari og íþróttakennari við sama skóla. Á árunum 2004-2013 starfaði Sólrún sem leikskólakennari og deildarstjóri á leikskólanum Andabæ.
Við bjóðum Sólrúnu velkomna til starfa við Grunnskólann í Borgarnesi. Sólrún mun formlega hefja störf við skólann frá og með 1. ágúst 2026.
Hagvangur hafði umsjón með ráðningarferlinu ásamt mannauðsstjóra og sviðsstjóra fjölskyldusviðs.
Tengdar fréttir

Kjörskrá vegna sveitarstjórnarkosninga 2026
Kjörskrá vegna sameiginlegra sveitarstjórnarkosninga Borgarbyggðar og Skorradalshrepps sem fer fram þann 16. maí 2026, liggur nú frammi í þjónustuveri Ráðhúss Borgarbyggðar, Digranesgötu 2. Athugasemdir við kjörskrá skal senda beint til Þjóðskrár. Kjósendur geta einnig kannað hvar þeir eru á kjörskrá hér Kjósendur eru hvattir til að athuga í hvaða kjördeild þeir eiga að kjósa og hafa persónuskilríki með sér á …