31. ágúst, 2026
Fréttir

Nýtt ungmennaráð Borgarbyggðar fyrir starfsárið 2026-2027 hefur tekið til starfa. Fyrsti fundur ráðsins var haldinn föstudaginn 28. ágúst þar sem fráfarandi og nýkjörið ráð komu saman. Borgarbyggð vill færa fráfarandi ungmennaráði innilegar þakkir fyrir vel unnin störf og mikilvægt framlag til málefna ungs fólks í sveitarfélaginu.

Ungmennaráð Borgarbyggðar gegnir mikilvægu hlutverki sem samráðsvettvangur ungs fólks og sveitarfélagsins. Hlutverk ráðsins er meðal annars að koma sjónarmiðum og tillögum ungs fólks á framfæri við sveitarstjórn og aðra stjórnendur sveitarfélagsins, gæta hagsmuna ungs fólks og stuðla að aukinni þátttöku þess í lýðræðislegri umræðu og ákvarðanatöku.

Ráðið vinnur að því að efla tengsl milli ungmenna og bæjaryfirvalda, stuðla að virku samráði við nemendur grunnskóla og framhaldsskóla í sveitarfélaginu og halda ungmennum upplýstum um mál sem þau varða. Þá kemur ráðið að undirbúningi og skipulagningu ungmennaþings og sveitarstjórnarfundar unga fólksins, auk þess að vera ráðgefandi um starfsemi félagsmiðstöðvarinnar Óðals.


Formaður ungmennaráðs starfsárið 2026-2027 er Ólöf Sesselja Kristófersdóttir, varaformaður er Hrafnhildur Ósk Orradóttir og markaðsstjóri ráðsins er Stefán Jósef Hafdísarson.

Ungmennaráð Borgarbyggðar 2026-2027

Fulltrúar Grunnskólans í Borgarnesi

  • Hallgrímur Vigfússon
  • Stefán Jósef Hafdísarson

Varafulltrúar:

  • Rakel María Pálmadóttir
  • Ásdís Vera Gunnarsdóttir

Fulltrúi Grunnskóla Borgarfjarðar

  • Steinunn Vár Þórðardóttir

Varafulltrúi:

  • Atli Jónsson

Fulltrúi Menntaskóla Borgarfjarðar

  • Ólöf Sesselja Kristófersdóttir

Varafulltrúi:

  • Guðmundur Heiðar Eyjólfsson

Fulltrúi atvinnulífsins

  • Hrafnhildur Ósk Orradóttir

Varafulltrúi:

  • Marta Lukka Magnúsdóttir

Fulltrúi Mímis

  • Ísak Daði Eðvarðsson

Varafulltrúi:

  • Hera Björg Hákonardótti

Borgarbyggð óskar nýju ungmennaráði velfarnaðar í störfum sínum og hlakkar til áframhaldandi samstarfs við öflugan hóp ungs fólks sem mun vinna að framgangi hagsmuna ungmenna í sveitarfélaginu á komandi starfsári.

Tengdar fréttir

31. ágúst, 2026
Fréttir

Virkniþing Borgarbyggðar 2026

Í tilefni af Íþróttaviku Evrópu (Beactive) boða Borgarbyggð og Ungmennasamband Borgarfjarðar til Virkniþings 2026 í Hjálmakletti þar sem íbúum gefst tækifæri til að kynna sér það fjölbreytta íþrótta-, tómstunda- og virknistarf sem í boði er í Borgarbyggð fyrir börn, ungmenni og fólk á öllum aldri. Öllum þeim sem standa að íþrótta-, tómstunda- eða annars konar virknistarfi í Borgarbyggð er boðið …