Uppskeruhátíð þróunarverkefnisins Mál og læsi: snemmtæk íhlutun í leikskólum Borgarbyggðar var haldinn í Hjálmakletti síðastliðinn fimmtudag í tilefni af lokum fyrsta innleiðingarárs verkefnisins.
Allir leikskólarnir í Borgarbyggð tóku þátt í verkefninu og var það unnið í samstarfi við Miðstöð menntunar og skólaþjónustu. Á árinu hafa leikskólarnir því rýnt í málörvunarstarfið sitt, unnið að skýrara verklagi og sett niðurstöður vinnunnar í handbækur sem eiga síðan að styðja við áframhaldandi þróunarstarf.
Á uppskeruhátíðinni voru handbækurnar og annað efni sem varð til í þróunarvinnunni til sýnis. Þar tóku þau Baldur Rafn og Kristbjörg, ungir og efnilegir fyrrum nemendur leikskólanna, lagið við mikla hrifningu viðstaddra. Við lok hátíðarinnar afhenti starfsfólk Miðstöðvar menntunar og skólaþjónustu leikskólunum bókagjafir með þökkum fyrir samstarfið og árnaðaróskum um áframhaldandi öflugt starf í þágu mál- og læsisþróunar barna í Borgarbyggð.
Tengdar fréttir

Sumarstemning í Borgarbyggð
Mikil lífsgleði og eftirvænting einkenna upphaf sumars í Borgarbyggð en í dag hófst bæði Sumarfjör fyrir yngstu grunnskólabörnin og starfsemi Vinnuskólans fyrir eldri ungmenni. Fyrsti dagur Sumarfjörs er í dag fyrir börn sem hafa lokið 1.–4. bekk og eru ríflega 60 börn skráð í upphafsvikur námskeiðsins. Boðið er upp á rútuferðir fyrir börn í dreifbýli á starfsstöð í byrjun dags …

Breyting á útgáfu og móttöku reikninga vegna sameiningar Borgarbyggðar og Skorradalshrepps
Sameining Skorradalshrepps og Borgarbyggðar var samþykkt í íbúakosningu í september á síðasta ári og tók sameiningin gildi 01.06.2026. Kosið var í sveitarstjórn sameiginlegs sveitarfélags í sveitarstjórnarkosningunum 16. maí s.l. Ákveðið hefur verið að sameinað sveitarfélag skuli nota kennitölu Borgarbyggðar og mun skrifstofa Borgarbyggðar sjá um móttöku og greiðslu reikninga sameinaðs sveitarfélags frá og með 01.06.2026. Hér með er því farið …