Borgarbyggð óskar eftir tilnefningum frá almenningi til Listamanneskju Borgarbyggðar fyrir árið 2026.
Nafnbótin getur hvort sem er hlotnast einstaklingum eða
hópi og geta allir tilnefnt listamanneskju úr öllum listgreinum.
Valnefnd mun fara yfir allar þær tillögur sem berast og verða niðurstöðurnar kynntar 17. júní nk.
Tilnefningar þurfa að berast fyrir 1. júní nk. og skal skila rafrænt á netfangið mannlif@borgarbyggd.is
Í fyrra var það Sigríður Ásta sem hlaut nafnbótina Listamanneskja Borgarbyggðar

Sigríður Ásta Olgeirsdóttir, Listamanneskja Borgarbyggðar 2025
Tengdar fréttir

Barnamenningarhátíðin OK 2026
Barnamenningarhátíðin OK hefst formlega í dag. Hátíðin er tileinkuð allri menningu barna, menningu sem börn skapa sjálf, taka þátt í og njóta. Lögð er rík áhersla á að verk og framlag barna og ungmenna fái að njóta sín í sviðsljósinu og verði gestum til sýnis. Skipulag og framkvæmd hátíðarinnar er í höndum Listaskóla Borgarfjarðar í góðu samstarfi við fjölmarga aðila, …