3. nóvember, 2025
Fréttir

Borgarbyggð auglýsir eftir verslunar- og þjónustuaðilum í sveitarfélaginu sem hafa áhuga á að taka á móti gjafabréfum sem eru jólagjöf til starfsmanna sveitarfélagsins. Fyrirkomulagið verður þannig háttað að starfsmenn fá gjafabréf að andvirði 15.000 kr. ásamt upptalningu á fyrirtækjum sem skrá sig í verkefnið. Gjafabréfin virka sem greiðsla á eða upp í kaup á vöru og þjónustu í Borgarbyggð. Viðkomandi fyrirtæki fá síðan upphæðina greidda hjá Borgarbyggð gegn framvísun gjafabréfsins.

Gert er ráð fyrir að hægt verði að nota gjafabréfin frá 15. desember 2025 – 31. mars 2026.

Skilyrði fyrir þátttöku verslunar- og þjónustuaðila er að fyrirtækið sé með starfsemi í Borgarbyggð.

Um er að ræða ríflega 300 gjafabréf sem þurfa að afhendast í byrjun desember 2025.

Skráningafrestur er til 14. nóvember n.k.

Skráning fer fram á netfanginu iris.gunnarsdottir@borgarbyggd.is og nánari upplýsingar gefur Íris Gunnarsdóttir, mannauðsstjóri í síma 433-7100.

Tengdar fréttir

31. október, 2025
Fréttir

Reisugildi fjölnota íþróttahúss í Borgarbyggð

Fimmtudaginn 6. nóvember nk. kl.17.00, verður haldið reisugildi við nýja fjölnota íþróttahúsið í Borgarbyggð, í tilefni þess að búið sé að loka húsinu. Hvetjum við öll til að mæta og skoða svæðið, boðið er upp á veitingar og léttar íþróttastöðvar þar sem hægt verður að sýna takta sína. Framkvæmdir við húsið hófust formlega með skóflustungu þann 20. mars síðastliðin en …