7. apríl, 2026
Fréttir

Um mánaðarmótin urðu þær breytingar hjá Héraðsskjalasafni Borgarfjarðar að Jóhanna Skúladóttir lét af störfum eftir rúmlega 20 ára farsælt starf fyrir safnið og Þórný Hlynsdóttir tók við starfinu.

Jóhanna hefur starfað hjá sveitarfélaginu frá árinu 2002, lengst af sem héraðsskjalavörður eða í yfir 20 ár við góðan orðstýr. Er henni þakkað þakkað fyrir gott og óeigingjarnt starf fyrir safnið og óskað velfarnaðar í framtíðinni.

Við starfinu tekur Þórný Hlynsdóttur og er hún boðin velkomin til starfa. Þórný er bókmenntafræðingur að mennt og hefur lokið MLIS-prófi í bókasafns- og upplýsingafræði. Þórný býr yfir víðtækri reynslu á sviði safna- og upplýsingamála, meðal annars sem fagstjóri hjá Landsbókasafni Íslands, forstöðumaður bókasafns Landbúnaðarháskóla Íslands og síðast sem forstöðumaður bókasafns Háskólans á Bifröst, auk þess að hafa gegnt starfi skjalastjóra þar.

 


Jóhanna Skúladóttir ásamt Þórunni Kjartansdóttur forstöðukonu menningarmála.

Kveðjuhóf var haldið á Safnahúsinu 27. mars sl. eftir að Jóhanna stýrði sínum síðasta myndamorgni.

Tengdar fréttir

28. apríl, 2026
Fréttir

Laus störf til umsóknar hjá Borgarbyggð

Á ráðningarvef Borgarbyggðar er að finna yfirlit yfir öll þau fjölbreyttu störf sem í boði eru hjá sveitarfélaginu. Ýmist er um að ræða framtíðarstarf, fullt starf eða hlutastarf sem tilvalið er með skóla. Markmið Borgarbyggðar er að hafa ávallt á að skipa hæfum, áhugasömum og traustum starfsmönnum sem sýna frumkvæði í starfi, veita íbúum þess góða þjónustu og geta brugðist …

27. apríl, 2026
Fréttir

Tilkynning frá Veitum vegna framkvæmda í Kvíaholti

Vegna tengingar parhúss við Kvíaholt munu Veitur loka seinni gatnamótum Kvíaholts og Stöðulsholts. Lokunin er fyrirhuguð þriðjudaginn 28. apríl 2026 og áætlað er að gatnamótin opni aftur 30. apríl 2026 (með fyrirvara um breytingar). Við biðjum vegfarendur og íbúa að sýna þolinmæði og aðgát þegar farið er um svæðið meðan á framkvæmdum stendur.