Barnó! – Barnamenningarhátíð á Vesturlandi var í ár haldin í fyrsta sinn sem sameiginlegt verkefni allra sveitarfélaga á Vesturlandi.
Hátíðin stóð yfir frá 9. október til 14. nóvember og bauð upp á fjölbreytta dagskrá; sirkuslistir, tónlist, bókmenntir, myndlist, leiklist, auk ýmissa smiðja og sýninga þar sem börn tóku sjálf virkan þátt.
Í Skallagrímsgarði var meðal annars sett upp skemmtileg listasýning eftir nemendur í 10. bekk í myndmennt í Grunnskólanum í Borgarnesi.
Sýningin prýddi garðinn og vakti mikla lukku – ekki síst meðal yngstu gesta.
Barnó! er áhersluverkefni Sóknaráætlunar Vesturlands og hlaut styrk frá Barnamenningarsjóði Íslands.


Tengdar fréttir

Rafmagnslaust á Hvanneyri þann 5.3.2026
Vegna vinnu við götuskápa verður rafmagnslaust á Hvanneyri frá kl. 13:30 til kl. 16:30, fimmtudaginn þann 5.3.2026. Mögulega kemur rafmagn á í stuttan tíma meðan á framkvæmd stendur vegna prófana. Nánari upplýsingar veitir stjórnstöð í síma 528 9000. Kort af svæðinu má sjá á rarik.is/rof

Útsent bréf til fasteignaeigenda í Borgarbyggð
Í síðustu viku sendi byggingafulltrúi bréf til fasteignaeigenda í Borgarbyggð þar sem þeim var bent á að yfirfara skráningu á fasteign sinni en um 360 bréf voru send. Þau atriði sem nefnd eru í bréfinu og fasteignaeigendur eru beðnir að skoða eru: • Ekki er rétt skráð byggingarstig.• Ekki er skráð lokaúttekt.• Byggt er án heimilda.• Stærð mannvirkis er ekki …