10. apríl, 2026
Fréttir

Hreinsunarátak 2026

Hreinsunarátak í þéttbýli – Vorið 2026.

Gámar fyrir gróðurúrgang og timbur verða aðgengilegir vikuna 22.-28. apríl nk. á eftirfarandi stöðum:

Bifröst

Varmaland

Hvanneyri – BÚT-hús

Kleppjárnsreykir – gryfjan við Litla-Berg.

Ef gámar eru að fyllast þá biðjum við ykkur vinsamlegast hafði samband við Gunnar hjá ÍGF í síma 840-5847

Vakin skal athygli á því að gámar eru ekki fyrir úr sér gengin ökutæki!

Minnt er á 7.2.2.gr. byggingarreglugerðar:

Lóðarhafa er skylt að halda vexti trjáa og runna á lóðinni innan lóðarmarka. Sinni hann því ekki og þar sem vöxtur trjáa eða runna fer út fyrir lóðarmörk við götur, gangstíga eða opin svæði er veghaldara eða umráðamanni svæðis heimilt að fjarlægja þann hluta er truflun eða óprýði veldur, á kostnað lóðarhafa að undangenginni aðvörun.

Tengdar fréttir

30. apríl, 2026
Fréttir

Um skipan í kjördeildir í Borgarbyggð og Skorradalshrepp

Við Sveitarstjórnarkosningar laugardaginn 16. maí 2026 er skipan í kjördeildir í Borgarbyggð og Skorradalshrepp sem hér segir: Borgarneskjördeild í Hjálmakletti í Borgarnesi Þar kjósa íbúar á svæðinu milli Hítarár og Gljúfurár, á Hvanneyri og Andakíl. Kjörfundur hefst kl. 9:00 og lýkur kl. 22:00.   Lindartungukjördeild í félagsheimilinu Lindartungu Þar kjósa íbúar á svæðinu milli Hítarár og Haffjarðarár. Kjörfundur hefst kl. …

28. apríl, 2026
Fréttir

Laus störf til umsóknar hjá Borgarbyggð

Á ráðningarvef Borgarbyggðar er að finna yfirlit yfir öll þau fjölbreyttu störf sem í boði eru hjá sveitarfélaginu. Ýmist er um að ræða framtíðarstarf, fullt starf eða hlutastarf sem tilvalið er með skóla. Markmið Borgarbyggðar er að hafa ávallt á að skipa hæfum, áhugasömum og traustum starfsmönnum sem sýna frumkvæði í starfi, veita íbúum þess góða þjónustu og geta brugðist …