Byggðarráð Borgarbyggðar samþykkti 15. október 2026 tillögu slökkviliðsstjóra og sveitarstjóra um breytt skipurit Slökkviliðs Borgarbyggðar. Markmiðið er að efla eldvarnaeftirlit og forvarnir og nýta stöðugildi slökkviliðsins þar sem þörfin og áhættan er mest.
Fastir starfsmenn slökkviliðsins í fullu starfi verða áfram tveir, slökkviliðsstjóri og eldvarnaeftirlitsmaður. Staða aðstoðarslökkviliðsstjóra er lögð niður og í staðinn verður ráðinn eldvarnaeftirlitsmaður í fullt starf. Fjöldi stöðugilda er því óbreyttur en áherslan færist frá yfirstjórn yfir í forvarnir og eftirlit. Breytingin tekur gildi 1. maí 2027. Frá þeim tíma verður ekki lengur um hleðslu og þjónustu við slökkvitæki að ræða hjá slökkviliði Borgarbyggðar.
Breytingin byggir á greiningu í drögum að nýrri brunavarnaáætlun fyrir árin 2026 til 2031. Þar kemur fram að eldvarnaeftirlit er eitt mikilvægasta tæki sveitarfélagsins til að vernda líf og eignir, ekki síst vegna mikilla vegalengda og takmarkaðs slökkvivatns. Eldvarnaeftirliti hefur til þessa verið sinnt í hálfu stöðugildi.
Breytingin dregur ekki úr viðbragðsgetu slökkviliðsins. Bakvöktum stjórnenda verður skipt á milli slökkviliðsstjóra, eldvarnaeftirlitsmanns og reyndra varðstjóra á starfsstöðvum liðsins í Borgarnesi, á Hvanneyri, í Reykholti og á Bifröst. Í forföllum slökkviliðsstjóra verður staðgengill settur hverju sinni.
Bjarni Kr. Þorsteinsson, sem gegnt hefur starfi aðstoðarslökkviliðsstjóra og slökkviliðsstjóra hjá Borgarbyggð um árabil, lætur af því starfi þann 30. apríl næstkomandi.
Bjarni Kr. mun starfa áfram hjá Borgarbyggð í sérverkefnum út árið 2027, annars vegar í 20% hlutastarfi hjá slökkviliðinu og hins vegar í 80% starfshlutfalli hjá áhaldahúsi þar sem áherslan verður á umhverfismál og fegrun sveitarfélagsins.
„Ég vil þakka Bjarna fyrir störf hans hjá Slökkviliði Borgarbyggðar og ég hlakka til að njóta starfskrafta hans í nýjum og breyttum verkefnum. Bjarni hættir sem betur fer ekki hjá okkur strax heldur fer í það mikilvæga verkefni að gera átak í því að fegra sveitarfélagið okkar og gera umhverfið betra. Ég bind líka vonir við að breytingin á skipulagi slökkviliðsins tryggi öflugt eldvarnaeftirlit enda hef ég trú á því að forvarnir séu besta leiðin til að koma í veg fyrir bruna og vernda líf og eignir íbúa,“ segir Unnur Brá Konráðsdóttir, sveitarstjóri Borgarbyggðar.
„Það hefur verið mér mikill heiður að starfa með Bjarna í gegnum árin. Hann hefur verið í slökkviliðinu frá árinu 1977 og tók, sem slökkviliðsstjóri í Borgarbyggð, vel á móti mér
þegar ég steig mín fyrstu skref sem slökkviliðsmaður, rétt tæplega tvítugur. Bjarni hefur gegnt lykilhlutverkum innan slökkviliðsins um áratugaskeið, fyrst sem slökkviliðsmaður, næst slökkviliðsstjóri og síðar sem aðstoðarslökkviliðsstjóri, og ég hef alla tíð kunnað vel að meta samstarf okkar.
Ný brunavarnaáætlun sýnir að efla þarf eldvarnaeftirlit og forvarnir í sveitarfélaginu, og þær skipulagsbreytingar sem nú eru gerðar taka mið af þeirri þörf. Ég vil þakka Bjarna innilega fyrir samstarfið, vináttuna og mikilvægt framlag hans til samfélagsins í gegnum árin. Ég óska honum alls hins besta og góðs gengis í nýjum verkefnum á nýjum vettvangi,“ segir Heiðar Örn. Jónsson, slökkviliðsstjóri Borgarbyggðar.
„Ég var farinn að leiða hugann að starfslokum og hef átt mjög gott samstarf við alla á mínum ferli en starfið hefur stundum verið erfitt og reynt á. Ég fékk skipunarbréf frá sveitarstjóra, Húnboga Þorsteinssyni árið 1977, og það er óhætt að segja að margt hefur breyst frá þeim tíma. Ég vænti góðra samskipta í nýjum verkefnum og hvet alla sem vilja til að hafa samband. Netfangið mitt er bjarnikr@borgarbyggd.is, og sími 862 6222,“ segir Bjarni Kr. Þorsteinsson.
Staða eldvarnaeftirlitsmanns verður auglýst í janúar og ráðið í stöðuna frá og með 1. maí n.k.
Nánari upplýsingar veitir Unnur Brá Konráðsdóttir sveitarstjóri, unnurbra@borgarbyggd.is
Tengdar fréttir

Heilahjálp með fræðslu um heilabilun í Borgarnesi
Heilahjálp – samtök um heilabilun (áður Alzheimersamtökin) bjóða til opinnar fræðslu um heilabilun, góð samskipti og stuðning við aðstandendur í hátíðarsal Brákarhlíðar fimmtudaginn 19. nóvember kl. 17:00. Aðgangur er ókeypis og öll áhugasöm velkomin. Á fræðslufundunum verður starf samtakanna kynnt og fjallað um þær áskoranir sem einstaklingar með heilabilun og aðstandendur þeirra standa frammi fyrir. Sérstök áhersla verður lögð á …