12. nóvember, 2026
Fréttir

Heilahjálp – samtök um heilabilun (áður Alzheimersamtökin) bjóða til opinnar fræðslu um heilabilun, góð samskipti og stuðning við aðstandendur í hátíðarsal Brákarhlíðar fimmtudaginn 19. nóvember kl. 17:00.
Aðgangur er ókeypis og öll áhugasöm velkomin.

Á fræðslufundunum verður starf samtakanna kynnt og fjallað um þær áskoranir sem einstaklingar með heilabilun og aðstandendur þeirra standa frammi fyrir. Sérstök áhersla verður lögð á mikilvægi góðra samskipta, aukins skilnings og stuðnings við aðstandendur.

Meiri þekking – minni fordómar

Eitt af meginmarkmiðum Heilahjálpar er að auka þekkingu og dýpka skilning á heilabilun og áhrifum hennar á líf einstaklinga og aðstandenda þeirra.

Það skiptir sköpum að tala opinskátt um heilabilun. Að segja frá greiningu getur dregið úr kvíða og einangrun, bæði fyrir þann sem greinist og aðstandendur. Með aukinni umræðu getum við einnig unnið gegn fordómum og stuðlað að skilningsríkara samfélagi.

Fræðsluna leiða Thelma Jónsdóttir, fræðslustjóri Heilahjálpar, og Ásta Kristín Guðmundsdóttir, ráðgjafi hjá samtökunum.

Fundargestir fá aukinn skilning á breyttum aðstæðum, hagnýtar hugmyndir að bættum samskiptum og tækifæri til að fræðast og ræða málefni sem snerta marga. Fræðslan er ætluð einstaklingum með heilabilun, aðstandendum, fagfólki og öllum öðrum sem vilja auka þekkingu sína.

 

Nánari upplýsingar veitir

Thelma Jónsdóttir, fræðslustjóri Heilahjálpar thelma@heilahjalp.is sími 868-6056

Tengdar fréttir

11. nóvember, 2026
Fréttir

Rafmagnslaust í Borgarbyggð og Eyja og Miklaholtshreppi þann 12.11

Vegna vinnu við nýtt strengkerfi verður rafmagnslaust í Borgarbyggð og Eyja og Miklaholtshreppi frá kl. 12:00 til kl. 17:00 þann 12.11.2026. Mögulega kemur rafmagn á í stuttan tíma meðan á framkvæmd stendur vegna prófana. Nánari upplýsingar veitir stjórnstöð í síma 528 9000. Kort af svæðinu má sjá á hér