Byggðarráð Borgarbyggðar lýsir yfir vilja sínum til að taka virkan þátt í sameiginlegu átaki sveitarfélaga og ríkis til að stuðla að efnahagslegum stöðugleika, lækkun verðbólgu og vaxta.
Með hliðsjón af nýsamþykktri ályktun landsþings Sambands íslenskra sveitarfélaga frá 25. september samþykkti byggðarráð að við gerð fjárhagsáætlunar Borgarbyggðar fyrir árið 2027 verði almennum hækkunum á gjaldskrám sveitarfélagsins haldið innan 2,5% ramma, að því gefnu að ríkið geri slíkt hið sama.
Með þessu vill Borgarbyggð leggja sitt af mörkum til sameiginlegs átaks gegn verðbólgu og stuðla að auknum efnahagslegum stöðugleika. Byggðarráð tekur jafnframt undir áherslur landsþings Sambands íslenskra sveitarfélaga um að ríkisvaldið og stofnanir þess sýni sambærilega samfélagslega ábyrgð og takmarki hækkanir á eigin gjaldskrám og álögum sem snerta heimili og fyrirtæki.Jafnframt áréttar byggðarráð mikilvægi þess að ríkið tryggi sveitarfélögum fulla og raunhæfa fjármögnun lögbundinna verkefna og þeirra nýju skyldna sem þeim eru falin.
Við gerð fjárhagsáætlunar 2027 verður því miðað við framangreint 2,5% viðmið og hefur fjármálastjóra og sviðsstjórum verið falið að haga áframhaldandi vinnu við áætlunina í samræmi við það.
Tengdar fréttir

Sprengingar hefjast við Sólbakka 11-15
Framundan eru framkvæmdir sem fela í sér sprengingar við Sólbakka 11–15. Föstudaginn 2. október er áætlað prufuskot um kl. 12.00. Frá mánudeginum 5. október verður gert ráð fyrir tveimur sprengingum á dag næstu daga, kl. 11.30 og 16.00. Framkvæmdin er á vegum Borgarverk ehf en starfsmenn fyrirtækisins hafa þegar rætt við starfsfólk fyrirtækja næst vinnusvæðinu. Sprengiskotin verða varin með sprengimottum …