1. október, 2026
Fréttir

Framundan eru framkvæmdir sem fela í sér sprengingar við Sólbakka 11–15.
Föstudaginn 2. október er áætlað prufuskot um kl. 12.00. Frá mánudeginum 5. október verður gert ráð fyrir sprengingum á milli kl. 08.00 og 16.00 á daginn.

Framkvæmdin er á vegum Borgarverk ehf en starfsmenn fyrirtækisins hafa þegar rætt við starfsfólk fyrirtækja næst vinnusvæðinu. Sprengiskotin verða varin með sprengimottum og mælar verða settir upp til að vakta þann titring sem sprengingarnar valda svo standast megi reglugerð.

Tengdar fréttir

29. október, 2026
Fréttir

Íbúafundir um mótun þjónustustefnu Borgarbyggðar 2027

Íbúafundir um þjónustustefnu Borgarbyggðar 2027  Borgarbyggð býður íbúum til íbúafunda um þjónustustefnu sveitarfélagsins fyrir árið 2027. Þar gefst íbúum tækifæri til að kynna sér stefnuna, ræða áherslur hennar og koma sjónarmiðum sínum á framfæri.  Hvað er þjónustustefna?  Þjónustustefna er stefna sveitarfélagsins um þá þjónustu sem það hyggst veita í öllum byggðarlögum þess, einkum utan stærstu þéttbýliskjarna. Í henni kemur fram …

27. október, 2026
Fréttir

Borvinna og sprengingar hefjast við Birkiklett og Húsasmiðjuna.

Vegna framkvæmda við Birkiklett og Húsasmiðjuna stendur nú yfir borunvinna. Stefnt er að því að hefja sprengingar mánudaginn 2. nóvember og er áætlað að þær standi yfir í tvær vikur Jarðvinna er unnin af Borgarverki. Við biðjumst velvirðingar á þeim óþægindum sem framkvæmdirnar kunna að valda og þökkum fyrir skilninginn.