Langar þig að hafa áhrif og skapa eitthvað skemmtilegt?
Leitað er að hressum og hugmyndaríkum krökkum á Vesturlandi í stýrihóp Barnó – BEST MEST VEST sem fer fram í október.
Í stýrihópnum færð þú að taka þátt í að móta hátíðina, koma með hugmyndir, hafa áhrif og skapa skemmtilega upplifun fyrir önnur börn
Þetta er frábært tækifæri til að láta rödd þína heyrast og prófa eitthvað nýtt.
Athugið að þátttakendur þurfa að vera búsettir á Vesturlandi.
Nánari upplýsingar og skráningu má finna HÉR
Tengdar fréttir

Auglýsing um framboð til sveitarstjórnar og sveitarstjórnarkosninga í sameinuðu sveitarfélagi Borgarbyggðar og Skorradalshrepps þann 16. maí 2026

Íbúakönnun um nafn á sameinuðu sveitarfélagi Borgarbyggðar og Skorradalshrepps
Ráðgefandi Íbúakönnun um nafn á sameinuðu sveitarfélagi hófst í dag, 15. apríl, og stendur til og með 27. apríl. Allir íbúar með lögheimili í sveitarfélögunum Borgarbyggð og Skorradalshreppi, 16 ára og eldri geta tekið þátt í gegnum þjónustugátt Borgarbyggðar. Til að komast þar inn þarftu rafræn skilríki. Smelltu hér til að fara í þjónustugáttina. Þrír möguleikar Valið er á milli …