15. apríl, 2026
Fréttir

Ráðgefandi Íbúakönnun um nafn á sameinuðu sveitarfélagi hófst í dag, 15. apríl, og stendur til og með 27. apríl.

Allir íbúar með lögheimili í sveitarfélögunum Borgarbyggð og Skorradalshreppi, 16 ára og eldri geta tekið þátt í gegnum þjónustugátt Borgarbyggðar.
Til að komast þar inn þarftu rafræn skilríki.
Smelltu hér til að fara í þjónustugáttina.

Þrír möguleikar

Valið er á milli þriggja kosta sem fela í sér mismunandi tillögur. Hver og einn íbúi hefur eitt atkvæði.

Valmöguleikarnir eru þessir:

· Borgarbyggð.

· Skorradalshreppur.

· Annað: ____________________________

 

Tekið er fram að könnun þessi er ráðgefandi en ekki bindandi. Fyrst og fremst er verið að kanna hug og vilja fólks gagnvart nafni fyrir sameinað sveitarfélag. Það verður svo hlutverk nýrrar sveitarstjórnar að taka endanlega ákvörðun um hvaða nafn hið sameinaða sveitarfélag kemur til með að bera.

Mikilvægt er að sem flestir taki þátt svo að könnunin endurspegli sem best viðhorf íbúa.

Tengdar fréttir

13. maí, 2026
Fréttir

Framboðsfundur í Hjálmakletti- Hlekkur á streymi

Síðasti framboðsfundurinn fer fram í Hjámlakletti í kvöld, 13. maí kl.20:00 Fundarstjórar kvöldins eru þeir Páll Brynjarsson og Gísli Einarsson. Athugið að opið er fyrir spurningagátt, hægt er að opna hlekkinn og senda inn spurningu. Þar er einnig hægt að hafa áhrif á hvaða spurningum verður svarað með því að “líka“ við þær spurningar. Spurningum verður svarað bæði úr sal …

13. maí, 2026
Fréttir

Borgarbyggð óskar eftir tilboðum í skóla- og tómstundaakstur

Borgarbyggð auglýsir nú eftir tilboðum í skóla- og tómstundaakstur fyrir grunnskólanemendur í sveitarfélaginu frá upphafi skólaárs haustið 2026. Útboðinu er skipt í þrjú svæði og innan hvers svæðis eru nokkrar akstursleiðir. Heimilt er að bjóða í einstök svæði, en bjóðandi skal bjóða í allar akstursleiðir innan þess svæðis sem boðið er í. Nánari upplýsingar, útboðsgögn og skil á tilboðum fara …