Bókakynning í Safnahúsinu

Mánudaginn 23. nóvember 2026 kl. 20:00 verður bókakynning í Safnahúsinu. Höfundar koma og kynna nýútkomnar bækur:
Helga Skúladóttir – Valdís, öll þessi þögn, bókin er auðlesin og grípandi spennusaga sem gerist í Borgarnesi.
Jovana Pavlović – Antithesis, ljóðabók sem gagnrýnir normið; hið sjálfgefna sjónarhorn sem sjaldan þarf að réttlæta tilvist sína.
Ragnheiður Harpa Leifsdóttir – Deig, ljóðabók um tímann, hversdaginn og töfrastundirnar. Hlaut Bókmenntaverðlaun Tómasar Guðmundssonar 2026.
Sigrún Elíasdóttir – Dagbók miðaldra unglings, bókin er gamansöm, kaldhæðin og óvægin skáldsaga af bláköldum veruleika einhleypra kvenna.
Eigum notalega bókastund, allir velkomnir.
Byrjar: 23.11.2026, 20:00
Endar: 23.11.2026, 21:15
Safnahús Borgarfjarðar, Bjarnarbraut 4-6, Borgarnesi
Frítt