Uppskeruhátíð Sumarlesturs 3. september n.k.

Fimmtudaginn 3. september kl. 16-17:30 bjóðum við öllum krökkum í heimsókn til okkar í Safnahúsið og fögnum frábærum árangri í sumarlestursátakinu í ár:
„Gúndi geithafur og grasleitin mikla“
Um 80 börn skráðu sig til leiks og þar af skiluðu 54 börn 312 miðum í happamiðakassann sem þýðir að þau lásu í 312 klukkustundir.
Sérstakur gestur dagsins er Gunni Helga, hinn margverðlaunaði barnabókahöfundur.
Jafnframt verða heppnir þátttakendur dregnir út, farið verður í leiki og veitingar í lok dagskrá.
Sjáumst sem flest!
Dagsetning:
Byrjar: 03.09.2026, 16:00
Endar: 03.09.2026, 17:30
Staðsetning:
Safnahús Borgarfjarðar Bjarnabraut 4-6, Borgarnesi
Verð:
Frítt