ARKIR – Brotabrot : Sýningaropnun
Í Hallsteinssal Safnahúss Borgarfjarðar, opnar Sýningin Brotabrota laugardaginn 11. apríl kl. 14:00. Á sýningunni BROTABROT sýnir listahópurinn ARKIR fjölbreytt úrval bókverka. Verkin sameina mismunandi listform en í grunninn er unnið með pappír og pappírsbrot. Bók er í eðli sínu nytjahlutur, en í bókverkunum er leikið með þrívítt formið og frumþætti bóka: síður, arkir og spjöld.
Listahópurinn ARKIR hefur starfað allt frá árinu 1998. Hópurinn telur níu meðlimi sem sinna öllu jafna margvíslegri listsköpun á sviði málara og grafíklistar, textíllistar, ritlistar, myndlýsinga og hönnunar. Frá árinu 2005 hafa ARKIR haldið fjölda sýninga og tekið þátt í samsýningum hérlendis og erlendis.
Verk á sýningunni eiga:
Anna Snædís Sigmarsdóttir, Arnþrúður Ösp Karlsdóttir, Áslaug Jónsdóttir, Helga Pálína Brynjólfsdóttir, Ingiríður Óðinsdótttir, Kristín Guðbrandsdóttir, Kristín Þóra Guðbjartsdóttir, Sigurborg Stefánsdóttir og Svanborg Matthíasdóttir.
Allir velkomnir
Byrjar: 11.04.2026, 14:00
Endar: 11.04.2026, 16:00
Safnahús Borgarfjarðar Bjarnabraut 4-6
frítt