Bókakvöld í Safnahúsi kl. 20:00 – „Bóhem úr Bæjarsveit“

Bókakvöld í Safnahúsi kl. 20:00 – „Bóhem úr Bæjarsveit“

Þriðjudaginn 23. september kl. 20:00 kemur til okkar í Safnahúsið blaðamaðurinn kunni Helgi Bjarnason og kynnir bók sína „Bóhem úr Bæjarsveit“.  Er þetta þriðja bókin í bókaflokknum Sagnaþættir úr Borgarfirði.

Í bókinni segir Helgi frá Þorsteini Björnssyni frá Bæ í Bæjarsveit.  Þorsteinn var guðfræðingur, skáld og rithöfundur, sem ávallt kenndi sig við æskustöðvar sínar, Bæ í Bæjarsveit í Borgarfirði.  Segja má að Þorsteinn hafi verið sértakur í háttum og kaus að lifa ekki hefðbundnu borgaralífi heldur fremur sem bóhem.

ALLIR VELKOMNIR.

Dagsetning:

Byrjar: 23.09.2025, 20:00
Endar: 23.09.2025, 21:30

Staðsetning:

Safnahús Borgarfjarðar Bjarnarbraut 4-6, Borgarnes

Verð:

Frítt inn