20. september, 2024
Allar Fréttir

Þriðjudaginn 24. september kl. 18:00 kemur til okkar í Safnahúsið, lögmaðurinn Flosi Hrafn Sigurðsson, með erindi um kosti þess að gera erfðaskrá og kaupmála.

Margbreytilegar fjölskyldusamsetningar geta kallað á forsjárhyggju er varðar erfða- og eignarétt og gott getur verið að  hafa vaðið fyrir neðan sig í þeim efnum.

Flosi Hrafn fer yfir helstu álitaefni og aðstæður þar sem ástæða þykir til að gera erfðaskrá og kaupmála.

 

Allir velkomnir og heitt á könnunni.

 

Safnahús Borgarfjarðar

Bjarnabraut 4-6, Borgarnesi

Tengdar fréttir