25. júní, 2026
Allar Fréttir

Þriðjudaginn 30. júní frá kl. 15:17 bjóðum við öllum krökkum í heimsókn til okkar í Safnahúsið á viðburðinn „Þinn eigin sumarlestur“.

Boðið verður upp á Krítarsmiðju úti á bílaplani þar sem við sköpum listaverk í anda sumarlesturs. Klukkan 16:00 mætir Ævar Þór Benediktsson og les úr nýútkominni bók sinni Skaðræðisskepnur og hvetur um leið alla til dáða í sumarlestrinum.

Við drögum jafnframt úr júnípotti sumarlesturs en þeir krakkar sem nú þegar hafa skilað happamiðum í pottinn gætu átt von á að vera dregnir út svo það er um að gera að skila miðum sem fyrst.

Hressing í boði og allir velkomnir.

 

Safnahús Borgarfjarðar

Bjarnabraut 4-6, Borgarnesi

Tengdar fréttir