6. apríl, 2026
Allar Fréttir

Laugardaginn 11. apríl kl. 14:00 opnar sýningin Brotabrot  í Hallsteinssal Safnahúss Borgarfjarðar.

Á sýningunni BROTABROT sýnir listahópurinnARKIR fjölbreytt úrval bókverka. Verkin sameina mismunandi listform en í grunninn er unnið með pappír og pappírsbrot. Bók er í eðli sínu nytjahlutur, en í bókverkunum er leikið með þrívítt formið og frumþætti bóka: síður, arkir og spjöld. Á sýningunni leitast listamennirnir við að brjóta upp klassískt form bókarinnar og finna nýjar leiðir til að vinna með bókina á
óhefðbundinn hátt.

Listahópurinn ARKIR hefur starfað allt frá árinu 1998. Hópurinn telur níu meðlimi sem sinna öllu jafna margvíslegri listsköpun á sviði málara og grafíklistar, textíllistar, ritlistar, myndlýsinga og hönnunar. Frá árinu 2005 hafa ARKIR haldið fjölda sýninga og tekið þátt í samsýningum hérlendis og erlendis.

Verk á sýningunni eiga:
Anna Snædís Sigmarsdóttir, Arnþrúður Ösp Karlsdóttir, Áslaug Jónsdóttir, Helga Pálína Brynjólfsdóttir, Ingiríður Óðinsdótttir, Kristín Guðbrandsdóttir, Kristín Þóra Guðbjartsdóttir, Sigurborg Stefánsdóttir og Svanborg Matthíasdóttir.

Tengdar fréttir