24. júní, 2026
Allar Fréttir

Þriðjudaginn 23. júní sl. var starfsdagur hjá starfsfólkinu, þar sem dagurinn var nýttur í fræðslu og heimsóknir.

Byrjað var á kynningu og umræðu um nýja viðbragðsáætlun en í henni eru meðal annars upplýsingar um hvernig bregðast eigi við hugsanlegri vá sem upp getur komið, t.d. við bruna, leka eða öskufall, og ógnað getur bæði gestum safnsins og safnmunum þess. Mikilvægt er að allir starfsmenn séu vel upplýstir um verkferla og fyrirkomulag í slíkum aðstæðum. Er vinna og endurskoðun viðbragðsáætlunar eitt af þeim verkum sem viðurkennd söfn eiga að sinna og þarf áætlunin að vera viðurkennd af Safnaráði áður en hún kemst í fullt gildi.

Í beinu framhaldi af þessu kom Heiðar Örn slökkviliðsstjóri í heimsókn með fræðslu um brunavarnir og viðbrögð ef upp kemur eldur.

Eftir hádegi var síðan brugðið undir sig betri fætinum og Bókasafn Mosfellsbæjar heimsótt og kynnst starfseminni þar, en rétt eins og hjá okkur í Safnahúsinu er listasalur út frá bókasafninu. Var þetta mjög skemmtileg og fróðleg heimsókn og þökkum við þeim Auði Halldórsdóttur forstöðumanni bókasafnsins og Maddy Hauth, sem sér um listasalinn, kærlega fyrir að taka á móti okkur.

Að endingu fengum við að kíkja í heimsókn í varðveisluhúsnæði Borgarsögusafns sem staðsett er á Esjumelum. Þar tók á móti okkur Þorvaldur Gröndal, verkefnastjóri minjavörslu, og sagði okkur frá verkefnum þeirra að koma fyrir munum safnsins, ljósmyndum og skrá, sem var fróðlegt og skemmtilegt og fær hann líka bestu þakkir fyrir góðar móttökur.

Var þetta góður og gagnlegur starfsdagur sem vel var nýttur.

Tengdar fréttir