24. mars, 2026
Allar Fréttir

Föstudaginn 27. mars 2026, milli kl. 10.00-12.00 verður myndamorgunn á vegum Héraðsskjalasafns Borgarfjarðar þar sem gestir aðstoða við greiningu ljósmynda úr eigu safnsins.
Myndin hér að ofan er frá heimsókn forseta Íslands í Borgarfjörð 5. júlí 1992. Sigrún Símonardóttir forseti bæjarstjórnar Borgarbyggðar og Vigdís Finnbogadóttir forseti ganga, ásamt fylgdarliði, inn í Skallagrímsgarð í Borgarnesi. Ljósmyndari: Júlíus Axelsson.
Verið velkomin!
Héraðsskjalasafn Borgarfjarðar
Safnahúsinu, Bjarnarbraut 4-6, Borgarnesi