
Um næstu mánaðamót verða þær breytingar hjá Héraðsskjalasafni Borgarfjarðar að Jóhanna Skúladóttir lætur af störfum eftir rúmlega 20 ára starf fyrir safnið og Þórný Hlynsdóttir tekur við keflinu.
Jóhanna hefur starfað hjá sveitarfélaginu frá árinu 2002, lengst af sem héraðsskjalavörður eða í yfir 20 ár við góðan orðstýr. Um leið og við þökkum Jóhönnu fyrir gott og óeigingjart starf fyrir safnið þá óskum við henni velfarnaðar í framtíðinni.
Við bjóðum einnig Þórnýju Hlynsdóttur hjartanlega velkomna til starfa og velfarnaðar í starfi. Þórný er bókmenntafræðingur með MLIS-próf í bókasafns- og upplýsingafræði. Þórný hefur starfað sem fagstjóri hjá Landsbókasafni Íslands, veitt forstöðu bókasafni Landbúnaðarháskóla Íslands og núna síðast verið forstöðumaður bókasafns Háskólans á Bifröst sem og skjalastjóri sömu stofnunar.