25. mars, 2026
Allar Fréttir

Núna um mánaðamótin lætur af störfum Jóhanna Skúladóttir, héraðsskjalavörður Héraðsskjalasafns Borgarfjarðar.
Jóhanna hefur starfað hjá sveitarfélaginu frá árinu 2002 við góðan orðstýr, lengst af sem héraðsskjalavörður í yfir 20 ár. Um leið og við þökkum Jóhönnu fyrir gott og óeigingjart starf í skráningu og vinnslu skjala og ljósmynda fyrir sveitarfélagið og samfélagið, óskum við henni velfarnaðar í framtíðinni.
Jóhanna stýrir sínum síðasta myndamorgni fyrir skjalasafnið á föstudagsmorgninum 27. mars í Safnahúsinu – og strax eftir það verður kveðjuhóf henni til heiðurs.